Sjáðu hvernig Ómar og Gísli kláruðu Dinamo Búkarest með magnaðri fótafimi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. september 2022 14:01 Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk í Búkarest. getty/Frederic Scheidemann Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson voru markahæstir hjá Magdeburg þegar þýsku meistararnir unnu Dinamo í Búkarest, 28-30, í 1. umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í handbolta í gær.
Ómar skoraði sex mörk og Gísli fimm. Þeir félagar fóru hvað eftir annað illa með varnarmenn Dinamo og plötuðu þá ótt og títt upp úr skónum. Íslensku landsliðsmennirnir voru sérstaklega drjúgir undir lokin. Gísli kom Magdeburg í 26-28 með marki eftir að hafa brotist í gegnum miðja vörn Dinamo. Rúmenarnir minnkuðu muninn í næstu sókn en Ómar svaraði með marki eftir gegnumbrot, 27-29. Þegar tæp hálf mínúta var eftir kláraði Gísli leikinn svo endanlega þegar hann skoraði þrítugasta mark Magdeburg eftir að hafa gabbað Frakkann reynda, Cedric Sorhaindo, sem réði ekkert við Hafnfirðinginn í leiknum. Helstu tilþrifin úr leik Dinamo og Magdeburg má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Vakin er sérstök athygli á marki Ómars á 1:27 mínútu í myndbandinu. Magdeburg er með í Meistaradeildinni eftir nokkurra ára fjarveru. Liðið varð þýskur meistari á síðasta tímabili og endaði í 2. sæti bikarkeppninnar og EHF-bikarsins. Ómar var valinn besti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og hefur haldið uppteknum hætti í vetur. Næsti leikur Magdeburg í Meistaradeildinni er gegn Zagreb á heimavelli á fimmtudaginn.
Meistaradeild Evrópu í handbolta karla Þýski handboltinn Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn til Stjörnunnar Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Fyrri hálfleikur Bandaríkjanna sá besti sem hann hefur séð Fótbolti Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Handbolti Maður dagsins á HM: Ólst upp í Englandi en valdi Bandaríkin Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Sjá meira