Jesse Marsch dæmdur í bann og sektaður um eina og hálfa milljón Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. september 2022 11:31 Jesse Marsch lét vel í sér heyra á hliðarlínunni. Kannski fullvel. Steve Bardens/Getty Images Jesse Marsch, knattspyrnustjóri Leeds United, verður ekki á hliðarlínunni í næsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Marsch var dæmdur í eins leiks bann fyrir hegðun sína í 5-2 tapi liðsins gegn Brentford þann 3. september síðastliðinn.
Bandaríkjamaðurinn var vægast sagt ósáttur í leiknum þegar honum þótti lið sitt eiga að fá vítaspyrnu. Marsch lét Robert Jones, dómara leiksins, heyra það og bað hann ítrekað um að kíkja í VAR-skjáinn góða til að skoða atvikið. Stjóranum þótti þá Aaron Hicke brjóta á vængmanni Leeds, Crysencio Summerville, innan vítateigs. Leeds manager Jesse Marsch has been given a one-game ban by the English Football Association for his behavior during a recent match.https://t.co/eNnf4bA6FQ— AP Sports (@AP_Sports) September 15, 2022 Marsch verður því í banni í næsta deildarleik Leeds sem er gegn Aston Villa þann 2. október næstkomandi. Liðið átti að mæta Manchester United næstkomandi sunnudag, en vegna andláts Elísabetar II Bretlandsdrottningar hefur þeim leik verið frestað. Ekki nóg með það að Marsch þurfi að fá sér sæti upp í stúku í næsta deildarleik Leeds, heldur þarf þjálfarinn einnig að opna veskið fyrir brot sitt. Enska knattspyrnusambandið hefur sektað þjálfarann um 10.000 pund sem sasvarar rúmlega einni og hálfri milljón íslenskra króna.
Enski boltinn Mest lesið Rassinn út og Netflix í rugli er Paul lagði Tyson Sport Kom heim með skjalatösku fulla af seðlum frá Rússlandi Fótbolti Árekstur í beinni er hitað var upp fyrir leik Íslands Fótbolti Vildi ekki rota og meiða Tyson Sport Messi: Þú ert hugleysingi Fótbolti Sóley Margrét heimsmeistari Sport Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Handbolti Steig á tána á Mike Tyson Sport Scott McTominay sér ekki eftir neinu Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenska karlalandsliðið í eldlínunni í Svartfjallalandi Sport Fleiri fréttir Van Nistelrooy sækir um stjórastarfið hjá Coventry Scott McTominay sér ekki eftir neinu Amorim gerir lítið úr pressunni: Ég er mjög afslappaður Amorim hitti heppna stuðningsmenn United í klefanum Coote skipulagði dóppartí rétt fyrir leik sem hann dæmdi United gæti skorið niður framlög til fatlaðra stuðningsmanna Enn vesen með atvinnuleyfi Rúben Amorim Enskur úrvalsdeildarleikmaður sakaður um margar nauðganir Gæti fengið sjö leikja bann fyrir rasisma í garð samherja Fyrrverandi kærasta kærir leikmann Liverpool Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Coote dómari í enn verri málum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ Sjá meira