Jodis er danskt merki en eigendurnir eru íslenskir. Hjónin Bragi Jónsson og Erla Hendriksdóttir stofnuðu og eiga merkið en þau hafa verið búsett í Danmörku í tvo áratugi. Erla og Bragi fóru fyrst til Danmerkur til að spila íþróttir en ílengdust svo í landinu.
Bragi og Erla setja sjálfbærni í forgang og er Jodís svokallað „slow fashion“ vörumerki. Dóra Júlía er þriðja íslenska konan sem JoDis fær með sér í hönnunarferlið en merkið hefur unnið með fleiri erlendum aðilum eins og til dæmis Lisbeth Östergaard og Möschu Vang. Tískubloggarinn Andrea Röfn og söngkonan GDRN hafa áður gefið út línur með merkinu eins og fjallað hefur verið um hér á Vísi.

„Okkur finnst virkilega gaman að vinna með mismunandi fólki með mismunandi stíla og áherslur hvað varðar tísku. Það skiptir okkur líka miklu máli að stíll og einkenni hvers og eins gestahönnuðar skíni í gegn og það gerir það svo sannarlega með nýju línunni hennar Dóru Júlíu sem er bæði litrík og skemmtileg og er um leið lýsandi fyrir samstarf okkur með Dóru Júlíu,“ segir Bragi eigandi JoDis.
„Það var ótrúlega gaman að fá að hanna þessa skó með JoDis og fá að fara nýjar og óhefðbundnar leiðir með litaval og snið. Við vildum gera skó sem vekja athygli og taka pláss hvert sem þeir fara og það tókst sannarlega. Þessi skólína endurspeglar stílinn minn og það magnaða listform sem bæði tíska og stíll er,“ segir Dóra Júlía um samstarfið.

Í tilefni nýju skólínunnar JoDis by Dóra Júlía verður haldið frumsýningarpartý í Kaupfélaginu Smáralind fimmtudaginn 8. september frá 17 til 19. Þar verður boðið upp á léttar veitingar, tónlist og mikla gleði.
„Öll eru velkomin og við erum svo sannarlega spennt fyrir að kynna þessa nýju samtarfslínu sem ber nafnið NOT-SO-LOW-KEY,“ segja þau að lokum.
Norski áhrifavaldurinn Andrea Steen sást í skærgrænu stígvélum úr línunni á tískuvikunni í Kaupmannahöfn á dögunum.