Yfirvöld nota gervigreind til að finna faldar sundlaugar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. ágúst 2022 07:45 Faldar sundlaugar hafa reynst óvæntur tekjustofn fyrir skattayfirvöld. Yfirvöld í Frakklandi hafa notað gervigreind til að leita að sundlaugum í níu héruðum, sem íbúar hafa ekki gefið upp. Fleiri en 20 þúsund sundlaugar hafa fundist til þessa og fært skattayfirvöldum jafnvirði 1,4 milljarða króna í tekjur.
Frökkum ber að tilkynna sundlaugar til yfirvalda, þar sem þær auka virði eigna og eiga þannig að leiða til hækkunar á fasteignaskatti. Fólk virðist hins vegar misduglegt að sinna tilkynningaskyldunni. Til að bregðast við þessu notuðu yfirvöld hugbúnað þróaðan af Google og franska ráðgjafarfyrirtækinu Capgemini, sem leitaði að sundlaugum á gervihnattamyndum af níu héruðum í október 2021. Nú segja skattayfirvöld að það standi til að nota hugbúnaðinn á landsvísu og þá er í skoðun að nota hann einnig til að finna aðrar framkvæmdir á borð við viðbyggingar, garða og garðskála, sem einnig spila inn í útreikning fasteignaskatta. Fyrst þarf þó að tryggja að hugbúnaðurinn flaggi ekki aðrar „byggingar“ á borð við barna- eða hundakofa. Árið 2020 voru 3,2 milljónir einkasundlaugar skráðar í Frakklandi. Tvísýnt er um fjölgun þeirra en það er í umræðunni að banna byggingu nýrra sundlauga, vegna mikils vatnsskorts.
Frakkland Gervigreind Loftslagsmál Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira