Vopnuð vasaljósum á sýningu sjóðheits listamanns Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. ágúst 2022 14:31 Sýning Péturs Geirs, Annarskonar Annaspann, hefur gengið vel. Jónas Alfreð Birkisson Pétur Geir Magnússon opnaði sýninguna Annarskonar Annaspann síðastliðna helgi við góðar viðtökur. Yfir 200 manns mættu á opnunina og Pétur hefur nú þegar selt rúmlega helming verkanna.
Blaðamaður ræddi fyrst við Pétur fyrir opnun þar sem hann segir kveikjuna að sýningunni hafa sprottið upp úr flutningum sínum til Stokkhólms síðasta haust. Þetta er aðeins önnur listasýning Péturs en á fyrstu sýningu sinni seldust öll verkin upp á nokkrum dögum. Hann sérhæfir sig í lágmyndum og segir fólk greinilega spennt fyrir þeim. „Sýningin hefur gengið vonum framar. Mér finnst mikil hrifning vera með þetta, fólk er mjög sátt. Þetta er náttúrulega sölusýning sem hefur gengið mjög vel og fólk er virkilega að fíla þetta format sem lágmyndin er.“ View this post on Instagram A post shared by Pétur Geir Magnússon (@petgmag) Íslenska sólarljósið fullkomið Sýningargestum gefst tækifæri á að nýta sér vasaljós á staðnum til að sjá hvernig ólík birtuskilyrði vinna með myndunum. „Þannig getur fólk leikið sér að því hvernig sólarljósið hefur áhrif á það hvernig myndin fer á flug og hreyfingu. Það breytist eftir því hvort það sé vetrar eða sumarsól en aðfall sólarinnar getur alltaf haft aukin áhrif á myndina. Við búum svo náttúrulega í fullkomnu landi fyrir lágmyndir, með svo sérstaka birtu af sólarljósi og ég tala nú ekki um á sumrin. Þú færð alltaf einhverja breidd af sólinni hér þar sem hún skín aldrei ofan á þig heldur á þig.“ View this post on Instagram A post shared by Pétur Geir Magnússon (@petgmag) Safnar verkum Péturs Pétur segist hafa vitað að viðfangsefni hans í listinni væri eftirsóknarvert, þar sem fyrsta sýning hans gekk mjög vel. „Það var fyrsta sýningin mín og ég var í smá í sjokki, rosalega þakklátur og þetta var mjög gaman.“ Hann grunaði því að þetta yrði ekki lengi að fara út í þetta skiptið. „Safnarar eru farnir að kaupa af mér núna og einn tilkynnti mér að hann er farinn að safna verkunum mínum, sem mér þótti mjög vænt um. Hann á nú fjögur verk eftir mig og það er dásamlegt að vita af því.“ Pétur segir verkin sín bjóða upp á eitthvað fyrir alla.Aðsend Aðspurður hvað hann telji ná sem mest til fólks í verkum sínum segir Pétur: „Þetta er gamalt listform sem er tekið í nútímalegt ívaf og er öðruvísi, ferskt og spennandi. Túlkun mín að gera lágmyndir úr við verður líka til þess að þau geti farið inn í ramma og upp á vegg á heimilum fólks, sem ég held að fólk sé mjög hrifið af. Sjálfar myndirnar eru formhreinar með hreinum flötum og hér er eitthvað fyrir alla.“ Sýningin stendur til og með 21. ágúst næstkomandi í kartöflugeymslunum, Ártúnsbrekku. „Ég verð á staðnum alla daga frá klukkan 14:00 - 20:00 ef fólk vill bera sýninguna augum og spjalla.“
Myndlist Menning Tengdar fréttir „Þetta gefur mér alveg óskaplega mikið“ Listamaðurinn Pétur Geir Magnússon sækir innblástur í náttúruna í sköpun sinni. Hann hefur komið að ýmsum skapandi greinum í gegnum tíðina og hefur augun sífellt opin fyrir nýjum hlutum. Amma hans og afi höfðu mótandi áhrif á myndlistarferil hans en Pétur Geir opnar listasýningu sína Annarskonar Annaspann í dag klukkan 14:00. Blaðamaður tók púlsinn á Pétri Geir og fékk að heyra nánar frá sýningunni og sköpunargleðinni. 13. ágúst 2022 13:00 Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Tónlist Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Tæpur helmingur íbúa hefur séð myndina Bíó og sjónvarp „Við munum ekki eldast saman“ Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira
„Þetta gefur mér alveg óskaplega mikið“ Listamaðurinn Pétur Geir Magnússon sækir innblástur í náttúruna í sköpun sinni. Hann hefur komið að ýmsum skapandi greinum í gegnum tíðina og hefur augun sífellt opin fyrir nýjum hlutum. Amma hans og afi höfðu mótandi áhrif á myndlistarferil hans en Pétur Geir opnar listasýningu sína Annarskonar Annaspann í dag klukkan 14:00. Blaðamaður tók púlsinn á Pétri Geir og fékk að heyra nánar frá sýningunni og sköpunargleðinni. 13. ágúst 2022 13:00