„Verður í vöðvaminninu að eilífu“ Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 15. ágúst 2022 13:30 Þær Sigga, Beta og Elín mynda hljómsveitina Systur ásamt bróður sínum Eyþóri en sveitin ferðast um landið á næstu dögum á tónleikaferðalagi. Aðsend Hljómsveitin Systur tók eftirminnilega þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision síðastliðið vor. Systurnar, þær Sigga, Beta og Elín, hafa notið lífsins í sumar og eru nú í óðaönn að skipuleggja tónleikaferðalag um landið sem hefst á miðvikudaginn og stendur til 27. ágúst næstkomandi. Blaðamaður tók púlsinn á Systrum og fékk að heyra frá tónleikunum, væntanlegri smáskífu og lífinu eftir Eurovision.
Hvenær kviknaði hugmyndin að þessu tónleikaferðalagi? Hún kviknaði eftir að við komum heim frá Ítalíu. Okkur langaði að halda áfram að spila og okkur langaði sérstaklega að spila hér heima á fallega landinu okkar. Við elskum að spila saman og erum svo þakklát fyrir að hafa fengið þetta tækifæri á Eurovision sem gerði okkur kleift að koma okkur systkinunum saman og út frá því að stofna bandið Systur. Við gætum ekki verið spenntari að halda áfram að spila og semja tónlist saman. Við erum nú þegar komin með fullt af nýju efni sem á eftir að taka upp en við munum frumflytja þau lög á túrnum um landið og erum virkilega spennt fyrir því. Það verður geggjað að spila hér heima þar sem við verðum með klukkutíma tónleikasett. Það er aðeins öðruvísi en síðasti túr þar sem við spiluðum bara eitt lag aftur og aftur. Við erum allavegana búin að æfa Með Hækkandi Sól oftar en nokkuð annað lag, sem er auðvitað mikill plús og það lag verður í vöðvaminninu að eilífu. Systur hlakka mikið til að ferðast um landið.Aðsend Hvernig hefur sumarið hjá ykkur verið? Sumarið hefur verið mjög gott. Mikið að gera, frí í skólum og leikskólum þannig rútínan hefur verið ferðalög með fjölskyldunni, spila, æfa, róló, ís og sund. Elín hefur verið spila með öðru bandi líka og ferðast út um alla Evrópu með þeim á milli þess sem hún spilar með okkur systrum og hugsar um son sinn. View this post on Instagram A post shared by Systur (@systurmusic) Hvað finnst ykkur standa upp úr eftir þátttöku ykkar í Eurovision í vor? Ást, kærleikur og falleg vinátta sem við eignuðumst eftir að hafa kynnst svo mikið af góðu fólki. Ný og spennandi tækifæri standa líka upp úr og að fá til liðs við okkur frábæra umboðsmenn, þau Önnu og Gísla, sem hjálpa okkur að halda okkur við efnið. Þau eru bara alveg best. View this post on Instagram A post shared by Systur (@systurmusic) Hvernig leggst tónleikaferðalagið í ykkur? Við erum ótrúlega spenntar að spila, Eyþór bróðir verður með okkur og spilar á hljómborð og rafmagnsgítar og syngur líka. Svo kemur meistari Kiddi Snær og trommar og pabbi, sem er tónlistarstjórinn okkar, kemur svo þegar hann getur. Það er búið að vera alveg ómetanlegt að hafa pabba með. Hann er auðvitað búinn að vera í bransanum lengi og túra um allan heim og er búinn að hjálpa okkur systkinunum að skipuleggja okkur varðandi æfingar og tónleika. Það hefur hjálpað okkur meira en orð geta líst! Mamma hjálpar auðvitað líka mikið varðandi tónlistina og er heimsins besta amman sem passar litlu börnin þegar þess þarf, á meðan við æfum. Við erum ekkert smá heppin að fá alla þessa aðstoð frá foreldrum okkar! Þau eru best. View this post on Instagram A post shared by Systur (@systurmusic) Hvað er fleira á döfinni? Við erum á fullu að semja og stefnum á að taka upp plötu á næstu mánuðum sem verður í þjóðlagaskotnum kántrí stíl. Við vorum svo að gera dreifingarsamning við Öldu Music og Ingrooves um þrjár smáskífur og gefum út þá fyrstu, Dusty Road, þann 23. september næstkomandi. Tónlistarmyndband sem snillingarnir Hilmir Berg og Einari Eyland gerðu með okkur verður gefið út á sama tíma. Við hlökkum mikið til að deila því með ykkur. Nánari upplýsingar um tónleikaferðalagið má finna hér.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Eurovision Tengdar fréttir Systur stóðu fyrir jafnrétti í opnunarpartýi Eurovision Íslenski hópurinn var glæsilegur á túrkis-dreglinum í kastalanum Reggia di Venaria í dag. Systkinin tóku sig vel út í persónulegum klæðnaði og segja erlenda fjölmiðla mikið hafa spurt sig út í það hvað þau standa fyrir. 8. maí 2022 21:36 Fullkominn flutningur hjá Systrum Systur voru landi og þjóð til sóma á Eurovision sviðinu í kvöld. Atriðið heppnaðist mjög vel, alveg eins og á öllum æfingum. 14. maí 2022 20:49 Úrslitin í Söngvakeppninni: Með hækkandi sól framlag Íslands í Tórínó Sigga, Beta og Elín sigruðu í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr í kvöld með laginu Með hækkandi sól. Þær systur unnu einvígi við Reykjavíkurdætur en þær síðarnefndu þóttu sigurstranglegastar að mati veðbanka. 12. mars 2022 22:15 Mest lesið Hrafnhildur hafnaði í öðru sæti í Miss Earth Lífið Þrjár íslenskar kvikmyndir hlutu verðlaun í Þýskalandi Lífið Lifa hægara lífi í New York en á Íslandi Lífið Brynjar Morthens leikur Bubba Morthens Bíó og sjónvarp Krakkatía vikunnar: Handbolti, eldgos og Alþingi Lífið Bein útsending: Vikulöng þrekraun Einars Lífið Nammimaðurinn er allur Lífið Niðurgangurinn á Þingvöllum þaggaður niður Lífið Rómantík í loftinu hjá Sveindísi Jane Lífið Fagnar átta árum án hugbreytandi efna Lífið Fleiri fréttir Rétta harmonikkan er í harmonikkuverksmiðju í harmonikkuþorpi Iceland Airwaves ýtt úr vör á Grund Fagna tuttugu ára afmæli og troða upp á Grund Segja aðra kaupa gervispilanir til að hafa áhrif á veðmál Young Thug játar sök en losnar úr fangelsi „Enginn þekkir mig og ég þekki engan, sem mér finnst þægilegt“ Laufey fagnaði með Oliviu Rodrigo og Chappell Roan Tileinkar lagið Grindvíkingum „Það hefur aldrei verið neinn ótti“ „Hugleikið hver fær að stunda kynlíf og hver ekki“ „Þetta er saga af villigötum“ „Enginn að fara að hringja í mig að fyrra bragði“ Kemur frá Sýrlandi og syngur á íslensku Space Odyssey opnar á nýjum stað Dr. Gunni spyr hvort það sé ekki bara búið að vera gaman Afhjúpað á hvaða dögum böndin spila á Airwaves Sjá meira
Systur stóðu fyrir jafnrétti í opnunarpartýi Eurovision Íslenski hópurinn var glæsilegur á túrkis-dreglinum í kastalanum Reggia di Venaria í dag. Systkinin tóku sig vel út í persónulegum klæðnaði og segja erlenda fjölmiðla mikið hafa spurt sig út í það hvað þau standa fyrir. 8. maí 2022 21:36
Fullkominn flutningur hjá Systrum Systur voru landi og þjóð til sóma á Eurovision sviðinu í kvöld. Atriðið heppnaðist mjög vel, alveg eins og á öllum æfingum. 14. maí 2022 20:49
Úrslitin í Söngvakeppninni: Með hækkandi sól framlag Íslands í Tórínó Sigga, Beta og Elín sigruðu í Söngvakeppni sjónvarpsins fyrr í kvöld með laginu Með hækkandi sól. Þær systur unnu einvígi við Reykjavíkurdætur en þær síðarnefndu þóttu sigurstranglegastar að mati veðbanka. 12. mars 2022 22:15