Rússar gerðu eldflaugaárás á hafnarborgina Odessa öðru sinni í gær frá því samkomulag þeirra við Úkraínumenn fyrir milligöngu Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna var undirritað á föstudag um að tryggja öruggan útflutning á korni frá borginni og öðrum tveimur hafnarborgum Úkraínu.
Frá því herinn í Úkraínu fékk fyrstu HIMARS eldflaugakerfin frá Bandaríkjunum fyrir nokkrum vikum og önnur og svipuð kerfi ásamt þungavopnum frá Evrópuríkjum, hefur hann náð að halda aftur af stórskotaliði Rússa í Donbas og sækja fram í suðri í átt að borginni Kerson.

Volodymyr Zelenskyy forseti Úkraínu segir herinn hafa náð að sprengja upp fjölda birgðastöðva Rússa og fellt mikinn fjölda hermanna. Sannleikanum væri hins vegar haldið kirfilega frá almenningi í Rússlandi.
„Það ríkti alger þögn um þetta, hefur verið birt, og ekkert sagt í viðtölum eða ræðum stjórnmálamanna eða herforingja. En þessi tala er nú þegar komin upp í næstum 40 þúsund,“ sagði Zelenskyy í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi.
Þótt tekist hafi að halda aftur af stórskotaliði Rússa og sókn þess í Donbas undanfarnar vikur eru þeir langt í frá dauðir úr öllum æðum eins og eldflaugaárásir þeirra á Odessa og fleiri borgir að undanförnu sanna.

Þannig segir Igor Konashenkov talsmaður rússneska varnarmálaráðuneytisins flugherinn hafa sprengt upp vopnageymslu skammt frá Dnipro og grandað rúmlega 100 HIMARS flugskeytum og fellt um 120 hermenn og erlenda málaliða. Önnur árangursrík árás hafi verið gerð í Dnipro héraði.

„Gerðar voru árásir á mannafla og hergögn í 142 héruðum, þar á meðal voru erlendir málaliðar í bráðabirgðaherstöð á svæði úkraínska orkuversins í Kharkiv auk vígamanna Svarta hundraðsins nærri Artemivsk í Alþýðulýðveldinu Donetsk,“ segir Konashenkov.
Útflutningur á korni frá Úkraínu hefur enn ekki hafist eftir samkomulag Rússa og Úkraínumanna fyrir milligöngu Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna var undirritaðá föstudag. Skipafélög þurfa að manna áhafnir og vilja fá svör um öryggi skipa sinna og áhafna. Talsmaður stjórnvalda í Odessa héraði segir undirbúning hafinn.
Samhæfingarmiðstöð skipuð fulltrúum Rússa, Úkraínumanna, Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna var formlega opnuð í Istanbul í Tyrklandi í dag. Það er áætlað að stýra öllum skipasiglingum með korn á Svartahafi.

Það er flókið verk vegna þess að allar hafnir borga Úkraínu við Svartahaf eru varðar með miklum fjölda tundurdufla sem leiðsöguskip þarf að leiða flutningaskip framhjá. Þá ríkir ekkert traust milli Rússa og Úkraínumanna þannig að fulltrúar Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna þurfa að miðla málum.