Verðbólgan nálgast tveggja stafa tölu Árni Sæberg skrifar 22. júlí 2022 09:45 Hagstofa Íslands birtir upplýsingar um vísitölu neysluverðs mánaðarlega. Vísir/Vilhelm Verðbólga mældist 9,9 prósent í júlí og hækkaði um 1,17 prósentustig milli mánaða. Verðbólga hefur ekki verið hærri frá því í september árið 2009.
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2022, er 553,5 stig og hækkar um 1,17 prósentustig frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 459,4 stig og hækkar um 0,94 prósentustig frá júní 2022, að því er segir í tilkynningu frá Hagstofunni. Þar segir að sumarútsölur hafi verið í gangi í mánuðinum og verð á fötum og skóm lækkað um 6,8 prósent sem lækkar vísitöluna um 0,24 prósentustig. Verð á húsgögnum og heimilisbúnaði lækkaði um 2,6 prósent og lækkar vísitöluna um 0,17 prósentustig. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 9,9% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 7,5%. Langt umfram spá bankanna Íslenskir bankar reiknuðu ekki með því að verðbólga myndi slaga í tíu prósent í júlímánuði. Til að mynda spáði Landsbankinn því að verðbólga myndi hækka um hálft prósentustig milli júní og júlí í 9,2 prósent. Þá myndi verðbólgan ná hámarki í ágúst þegar hún færi í 9,5 prósent og myndi svo lækka eftir það. Ljóst er að þær spár ganga ekki eftir.
Efnahagsmál Verðlag Íslenska krónan Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira