England mætti Austurríki í fyrsta leik Evrópumóts kvenna í fótbolta í kvöld. Mikil spenna er fyrir mótinu og til marks um það var uppselt á Old Trafford.
Miklar væntingar eru gerðar til enska liðsins á mótinu og þær stóðust pressuna í fyrsta leik hið minnsta.
Lokatölur í leiknum urðu 1-0 Englandi í vil en það var Beth Mead, framherji Arsenal, sem skoraði siguramark leiksins eftir tæplega 20 mínútna leik.
Mead fékk þá sendingur frá Fran Kirby, sem leikur með Chelsea, og vippaði boltanum laglega yfir Manuela Zinsberger, markvörð Austurríkis en markið má sjá hér að neðan:
Tæpt var það! Opnunarmark EM 2022
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 6, 2022
Englendingar komnir yfir! Beth Mead með mark sem marklínutæknin dæmdi inni! Stemningin er á Old Trafford pic.twitter.com/gT41Vc9kUw
Það var myndbandsdómgæslan sem staðfesti að markið væri gott og gilt en notast er við þá tækni í fyrsta skipti á Evrópumóti kvenna.
Meira var ekki skorað í leiknum og England hefur mótið vel. Þetta var 15. leikurinn í röð án taps hjá Englandi en liðið þykir sigurstranglegt á mótinu. Af þessum leikjum hefur liðið haft betur í 13 og gert jafntefli í tveimur.
María Þórisdóttir og samherjar hennar hjá Noregi mæta Norður-Írum í seinni leik í fyrstu umferð A-riðils á morgun.
Ísland hefur svo leik á sunnudaginn kemur þegar liðið etur kappi við Belga á æfingavelli Manchester City.