Ferguson yfirgefur Everton og stefnir á aðalþjálfarastarf Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. júlí 2022 22:32 Duncan Ferguson hefur séð tímana tvenna hjá Everton. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Skotinn Duncan Ferguson hefur ákveðið að yfirgefa enska úrvalsdeildarfélagið Everton. Ferguson hefur verið aðstoðarþjálfari liðsins síðan árið 2014.
Á þessum átta árum sem aðstoðarþjálfari hefur Ferguson unnið með sjö mismunandi þjálfurum og í tvíganga hefur hann tekið við liðinu sem bráðabirgðastjóri. Fyrra skiptið var í desember 2019 og það seinna í janúar á þessu ári. Hann var einnig leikmaður Everton í tvígang. Í fyrra skiptið á árunum 1994-1998 og það seinna á árunum 2000-2006. Hann lék samtals 273 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 73 mörk. Ferguson hefur nú tekið þá ákvörðun að segja skilið við Everton og ætlar að reyna fyrir sér sem aðalþjálfari, hvar svo sem það verður. An Everton icon. On the pitch and beyond.Wishing you nothing but the best, Dunc. 💪💙 pic.twitter.com/OLdaOHmyDT— Everton (@Everton) July 4, 2022 „Þetta hefur verið ótrúlega erfið ákvörðun, en ég þarf að horfa fram veginn til að taka næsta skref á ferlinum,“ sagði Ferguson. „Að taka við sem bráðabirgðastjóri gaf mér sjálfstraustið sem ég þurfti til að taka skrefið í þjálfun. Klúbburinn hefur verið mér góður og þeir hafa stutt mig í gegnum hvert skref á minni vegferð.“
Enski boltinn Mest lesið Þóttist vera með krabbamein með iPhone snúru upp í nefinu Sport Féllu á lyfjaprófi vegna gúmmíkurls í gervigrasinu Fótbolti Jón Dagur gagnrýnir sérfræðinga RÚV: „Regla að þú gast ekkert eða veist ekkert?“ Fótbolti Glódís barðist við tárin: „Eftirsjá og það er erfitt“ Fótbolti Heitt undir Þorsteini: Þetta eru enn ein vonbrigðin núna Fótbolti Skýrsla Sindra: Handklæðið dugar ekki við þessum tárum Fótbolti Þarf að gefa frá sér sætið sitt á heimsleikunum í CrossFit Sport Svisslendingarnir stálu handklæði Sveindísar Fótbolti Landsliðskonurnar neita að æfa Fótbolti Einkunnir Íslands: Fátt að frétta Fótbolti Fleiri fréttir Óvissan tekur við hjá Hákoni Þrennubikar Man. United geymdur á Anfield Oasis tileinkaði Diogo Jota lag á fyrstu tónleikunum í sextán ár Umboðsmaður með Íslandstengingu sakaður um að nauðga konu í sex ár Taka tíuna af Rashford og segja honum að vera lengur í sumarfríi Slot um Jota: Vinur allra og átti draumasumar sem gerir þetta enn sorglegra Michael Edwards og Richard Hughes senda frá sér yfirlýsingu vegna Jota Allt sem við vitum um banaslys Diogo Jota Yfirlýsing frá Liverpool: „Ólýsanlegur missir“ Borgaði bara ungmennaliðinu laun og nú má allt aðalliðið fara frítt Leikmaðurinn sem Liverpool ætlar að selja í sumar valinn bestur á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Leikmenn í enska þurfa nú að fara í viðtal þegar þeir koma af velli Brentford hafnaði tilboði Manchester United Liverpool semur við fyrrum liðsfélaga Stefáns Teits Heldur ekki áfram með Leicester Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Stefán Teitur og félagar auglýsa Tik Tok stjörnur Liverpool strákurinn hetjan þegar Englendingar fóru í úrslitaleikinn Lallana leggur skóna á hilluna Guardiola sýndi takta á ströndinni með leikmönnum sínum Þurfa að færa leik í ensku úrvalsdeildinni vegna krikketmóts Eigandi Jets í NFL kaupir stóran hlut í Crystal Palace Varð fyrir vonbrigðum með samningstilboð Liverpool Foreldrar Wirtz fá 1,4 milljarða vegna kaupa Liverpool Reiður sjálfum sér: „Ótrúlega heimskuleg mistök“ Tveir frá Arsenal og Bournemouth tilnefndir með nýjustu stjörnu Chelsea Samkomulag um kaupverð Kerkez í höfn Á förum frá Arsenal Erfiðasta byrjunin er hjá Arsenal og Man. United Sjá meira