Salah framlengir við Liverpool Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. júlí 2022 15:08 Mohamed Salah hefur verið einn allra besti leikmaður heims undanfarin ár. getty/Chris Brunskill Stuðningsmenn Liverpool hafa ærið tilefni til að gleðjast í dag því Mohamed Salah hefur skrifað undir nýjan samning við félagið.
Samningur Salahs við Liverpool átti að renna út eftir næsta tímabil og mikil óvissa ríkti hvort hann yrði áfram hjá félaginu. Þeirri óvissu hefur nú verið eytt því hinn þrítugi Salah hefur framlengt samning sinn við Rauða herinn til 2025. Talið er að hann fái 350 þúsund pund í vikulaun. pic.twitter.com/3WAJeenEpy— Liverpool FC (@LFC) July 1, 2022 Liverpool keypti Salah frá Roma 2017. Síðan þá hefur hann skorað 156 mörk í 254 leikjum fyrir liðið og unnið allt sem hægt er að vinna með því. Á síðasta tímabili varð Liverpool bikar- og deildarbikarmeistari, lenti í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og tapaði fyrir Real Madrid í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. „Mér líður frábærlega og hlakka til að vinna titla með liðinu. Þetta er gleðidagur fyrir alla,“ sagði Salah í tilefni undirskriftarinnar. „Það tekur alltaf smá tíma að framlengja en núna er allt frágengið svo við þurfum bara að einbeita okkur að því sem framundan er. Undanfarin 5-6 ár höfum við alltaf tekið skref upp á við. Á síðasta tímabili vorum við nálægt því að vinna fjóra titla en töpuðum tveimur í lokin.“ Á síðasta tímabili skoraði Salah 31 mark, þar af 23 í ensku úrvalsdeildinni. Hann var markahæsti leikmaður hennar ásamt Son Heung-min hjá Tottenham.
Enski boltinn Mest lesið Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍA - KR 3-1 | Þrenna Viktors geirnegldi sæti Skagamanna í efri hlutanum Íslenski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Enski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Svona er leikjaniðurröðunin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Þór – FH 1-0 | Gríðarmikilvægur sex stiga sigur Íslenski boltinn Allt um lokaumferðina og svona er skiptingin í Bestu deildinni Íslenski boltinn Uppgjörið: KA – Breiðablik 2-1 | Spyrntu sér af botninum Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan – ÍBV 2-2 | Eyjamenn á botninn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira