Efast um að ný starfsauglýsing Áslaugar Örnu samræmist lögum Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 30. júní 2022 14:40 Enskunotkun á Íslandi er feimnismál að sögn Eiríks. Hér vantar meiri umræðu um samlíf þessara tungumála á Íslandi. vísir/stöð 2 Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, efast um að starfsauglýsing sem birtist á vef háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins síðasta mánudag samræmist lögum um stöðu íslenskrar tungu og táknmáls. Ráðherra deildi auglýsingunni í gær og stærði sig af því að þarna væri í fyrsta skipti auglýst starf í íslensku ráðuneyti þar sem íslenskukunnátta væri ekki skilyrði.
Í lögum um stöðu íslenskrar tungu og táknmáls stendur skýrum stöfum: „Íslenska er mál Alþingis, dómstóla, stjórnvalda, jafnt ríkis sem sveitarfélaga, skóla á öllum skólastigum og annarra stofnana sem hafa með höndum framkvæmdir og veita almannaþjónustu.“ Þetta benti Eiríkur á í gær og kallaði eftir umræðu um stöðu íslenskrar tungu gagnvart ensku. Samkvæmt starfsauglýsingunni leitar ráðuneytið eftir talnaspekingi og felur starfið meðal annars í sér framsetningu og skilgreiningu á mælikvörðum, árangursmat á verkefnum sem ráðuneytið stýrir, undirbúning fjármálaáætlunar og fjárlaga og miðlun upplýsinga bæði innan og utan ráðuneytisins. „Óhjákvæmilega leiðir skortur á íslenskukunnáttu í þessu starfi til þess að stjórnsýsla ráðuneytisins verður að verulegu leyti á ensku sem er skýrt brot á tilvitnaðri lagagrein,“ skrifar Eiríkur um málið inn á umræðuhóp á Facebook. Would you like to work for the Government? Á mánudaginn birtist tilkynning á vef Stjórnarráðsins þar sem greint er frá því að háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hafi auglýst eftir þremur störfum. Þar má opna hlekk á auglýsingu fyrir starf umrædds talnaspekings undir yfirskriftinni Talnaspekingur sem elskar árangursmælikvarða. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Vísir/Vilhelm Sama dag birtist mun lengri og ítarlegri starfslýsing á enskri útgáfu af heimasíðu Stjórnarráðsins fyrir umrætt starf undir titlinum Would you like to work for the Government? Í hæfniskröfunum er tekið fram að viðkomandi verði að hafa „gott vald á íslensku og/eða ensku“. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, deildi enskri útgáfu starfsauglýsingarinnar á Facebook-síðu sinni í gær og tilkynnti að hér væri um að ræða fyrsta skipti þar sem ekki væri gerð krafa um íslenskukunnáttu í starfi innan ráðuneytis. Hér er í fyrsta sinn auglýst starf í Stjórnarráðinu þar sem íslenska er ekki krafa. Would you like to work with us?...Posted by Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir on Wednesday, 29 June 2022 Megum ekki halda áfram að stinga höfðinu í sandinn „Ég legg áherslu á, eins og ég hef oft gert, að almennt séð á ekki að nota skort á íslenskukunnáttu til að mismuna fólki við ráðningu í störf eða á öðrum sviðum. En það á aðeins við um ómálefnalega mismunun, þegar fyrir liggur að fólk geti sinnt starfinu fullkomlega án íslenskukunnáttu – þegar beiting tungumáls er óverulegur þáttur í starfinu, eða þörf á samskiptum við Íslendinga takmörkuð,“ skrifar Eiríkur um málið. Í sumum tilvikum sé þó „málefnalegt og eðlilegt og jafnvel nauðsynlegt, að gera kröfu um íslenskukunnáttu vegna eðlis starfsins. Ég get ekki betur séð en svo sé í þessu tilviki – starfið grundvallast á mállegum samskiptum í ræðu og riti,“ að hans sögn. Um þessi atriði megi vissulega deila. En skort hafi umræðu um áhrif enskrar tungu á íslensk samfélag, hvernig við tryggjum hagsmuni fólks sem kann ekki ensku og hagsmuni fólks sem hér býr en kann ekki íslensku. „Það hefur ekki borið á miklum umræðum um þetta, og verið farið með enskunotkun á Íslandi svolítið eins og feimnismál. Við tölum íslensku á Íslandi, segjum við. En við vitum samt að enskan er komin til að vera og ekkert bendir til annars en mikilvægi hennar í málsamfélaginu haldi áfram að aukast. Við megum ekki halda áfram að stinga höfðinu í sandinn – við þurfum að ræða þetta. Að minnsta kosti þurfum við að gera upp við okkur hvort það sé í lagi að starfsauglýsingar stjórnarráðsins brjóti í bága við lög,“ skrifar Eiríkur.
Íslensk fræði Íslenska á tækniöld Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Vinnumarkaður Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Innlent Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent Drengurinn fannst heill á húfi Innlent Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Erlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Innlent Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Innlent Íranir skjóta á Ísrael Erlent Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Innlent Fleiri fréttir Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Evran, Icelandair, brottfararstöð og Bubbi á Sprengisandi „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Sjá meira