Lysychansk síðasta vígi Úkraínumanna í Luhansk Árni Sæberg skrifar 25. júní 2022 16:53 Severodonetsk er fallin eftir linnulausar árásir Rússa á borgina síðustu vikur. Rick Mave/Getty Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Nú er Lysychansk eina borgin í Luhansk sem Úkraínumenn ráða enn yfir. „
Eftir að við drógum hersveitir okkar út er óvinurinn að safna saman liði sínu í Severodonetsk,“ segir í tilkynningu frá úkraínska hernum. Severodonetsk var breytt í höfuðborg Luhanskhéraðs eftir að uppreisnarmenn með stuðningi Rússa náðu samnefndri höfuðborg Luhansk á sitt vald fljótlega eftir að átök um héraðið hófust árið 2014. Það er því mikið tilfinningalegt áfall fyrir Úkraínumenn að missa hana í hendur Rússa. Rússar róa nú að því öllum árum að ná systurborginni Lysychansk og þar með stjórn alls Luhanskhéraðs. Kyrylo Budanov, yfirmaður njósnadeildar úkraínska hersins, segir í samtali við Reuters að Úkraínumenn muni safna öllu herliði sínu frá Severodonetsk saman í Lysychansk. Þar sé betra umhverfi til að verjast ágangi Rússa. Þá segir hann að Rússar beiti sömu aðferð í Luhansk og þeir beittu í Maríupol, að sprengja borgirnar af kortinu.
Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira