Greint var frá því í gær að vörukarfa ASÍ hefði hækkað í öllum matvöruverslunum sem könnunin nær til á síðustu sjö mánuðum.
Valur Þráinsson, aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins, bendir á að síðustu ár hafi vöruflokkar á borð við mat og drykkjarvöru, tryggingar og bankaþjónustu verið veikir fyrir verðhækkunum.
„Þessar greinar eiga það sameiginlegt að búa við lítið erlent samkeppnislegt aðhald. En svo eru flokkarnir sem búa við meira samkeppnislegt aðhald eins og undirflokkar vísitölunnar hvað varðar föt og skó, lítil heimilistæki og tölvur. Þeir hafa staðið í stað eða lækkað á síðustu árum,“ segir Valur.
Virðast ekki lepja dauðann úr skel
Verðhækkanirnar sem nú eigi sér stað, meðal annars vegna heimsfaraldurs og stríðsins í Úkraínu, virðist þróast eins.
Ástæðan fyrir því að umræðan sé svo mikil um hækkanirnar nú segir Valur að sé meðal annars sú að fyrirtæki séu víða að skila metafkomu á sama tíma og þau hækka verð sín.
„Þannig það virðist ekki vera að þau séu að lepja dauðann úr skel þrátt fyrir þessa bresti sem má finna víða um heim,“ segir hann.

Hann segir að væntingar um aukna verðbólgu geti leitt til enn meiri verðhækkana en ella.
„Það er raunveruleg hætta og sérstaklega á mörkuðum þar sem er til staðar mikið gegnsæi og fá fyrirtæki sem keppa. Þegar allir á markaðinum hafa væntingar til þess að keppinauturinn hækki þá verður það auðveldara heldur en þegar væntingarnar eru í hina áttina,“ segir Valur.
Samkeppniseftirlitið hefur nú verið með það til skoðunar hvort finna megi bresti í samkeppni eða brot á lögum í vöruhækkunum síðustu vikna.
„Við höfum væntingar til þess að niðurstöður þeirrar skoðunar gagnist og verði innlegg í umræðuna um einmitt þessi mál; hvort að verðhækkanirnar sem við sjáum hér á landi eru að gefa til kynna einhvers konar samkeppnisbresti eða ekki,“ segir Valur.