Sigríður fetar í fótspor ömmu sinnar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. maí 2022 13:41 Sigríður Hauksdóttir og Jón Halldórsson hjá handknattleiksdeild Vals handsala samninginn. valur Sigríður Hauksdóttir, landsliðskona í handbolta, hefur skrifað undir tveggja ára samning við bikarmeistara Vals.
Sigríður, sem er þrítug, kemur til Vals frá HK sem hún leikið með nær allan sinn feril. Hún lék ekkert á síðasta tímabili en hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir nokkru síðan. Sigríður, sem leikur í vinstra horni, á að baki 21 landsleik. Í þeim hefur hún skorað 49 mörk. Með félagaskiptunum til Vals fetar Sigríður í fótspor ömmu sinnar og nöfnu, Sigríðar Sigurðardóttur, sem lék með Val og var fyrsta konan sem var valin Íþróttamaður ársins 1964. Mamma Sigríðar er Guðríður Guðjónsdóttir, ein farsælasta handboltakona Íslands. Hún lék með Fram en þjálfaði Val um tíma. „Ég er virkilega sáttur með að fá Sigríði til liðs við okkur. Ég hef unnið með henni í landsliðinu og veit því að við erum að fá öflugan leikmann jafnt sem frábæran liðsfélaga inn í okkar sterka hóp. Ég er sannfærður um að hún muni styrkja hópinn á komandi tímabili,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, í fréttatilkynningu frá félaginu. Valur endaði í 2. sæti Olís-deildar kvenna á nýafstöðnu tímabili, varð bikarmeistari og komst í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn þar sem liðið tapaði 3-1 fyrir Fram.
Olís-deild kvenna Valur HK Mest lesið Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport Í beinni: Georgía - Ísland | Næsti slagur eftir langt ferðalag Handbolti Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Enski boltinn Fer til Eyja og fetar í fótspor föður síns Íslenski boltinn Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford Enski boltinn Sonur Scottie Pippen kom sér og föður sínum í sögubækurnar Sport Fram og Reykjavíkurborg semja um frekari framkvæmdir í Úlfarsárdal Íslenski boltinn Gleymdi að kjósa Vinicius Junior Fótbolti Messi og félagar óvænt úr leik í fyrstu umferð en Dagur Dan fór áfram Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Georgía - Ísland | Næsti slagur eftir langt ferðalag Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Þrjár breytingar á landsliðshópnum | Aron ekki með Mæta Svíum í tveimur leikjum fyrir HM Guðmundur Bragi öruggur á vítalínunni Sjá meira