„Innblásturinn kom af mínum samstarfi við Flamenco gítarleikarann Jeronimo Maya en hann er einn allra fremsti gítarleikari heims. Við höfum verið að spila saman þennan veturinn en ég hef verið búsettur í Madrid,“ segir Reynir í samtali við Lífið um innblásturinn að myndbandinu.
„Það kom frekar náttúrulega fram hjá okkur að blanda saman þessum tveimur menningarheimum, ég verandi íslenskur og hann verandi úr Flamenco - Sígauna fjölskyldu hérna á Spáni. Vísur Vatnsenda-Rósu smullu vel að Flamenco stílnum, einnig er þetta ein af fallegri laglíum veraldar og merkilegt er að fólk hérna á Spáni sem heyrir lagið fær það strax á heilann.“
Þeir sem tóku upp myndbandið eru fjöllistamennirnir Levent Karatas og Victor Varas sem kalla sig Artemulti.
„Við fundum fallegan stað hérna miðsvæðis sem heitir Espacio Ronda sem rekinn er af vinafólki Jeronimo. Salurinn hentaði fullkomlega uppá lýsingu og andrúmsloft. Kóregrafían við dansinn í myndbandinu er gerður af dansskóla Alicia Alonso og Flamenco dansarinn Daniel Caballero kemur fram í myndbandinu. Þau fengu þýðingu mína á ljóðinu og túlka þessar tregafullu ástir í dansinum, enda fáir dansar eins tilfinningaríkir og Flamencodans og því hentar það vel.“
Hópurinn er á leið til Íslands til að halda Flamenco sýningar 1.-4. júní og þar verður lagið spilað en miðasala er hafin á TIX.
„Þar komum við Jeronimo Maya fram ásamt Flamenco dansaranum Daniel Caballero, söngvaranum Miguel Jimenez og slagverksleikararnum Einari Scheving.“