Það var skömmu fyrir hádegi í gær að staðartíma sem að hinn átján ára Salvador Ramos mætti vopnaður í Robb grunnskólann í Uvalde sem er í suðurhluta Texas í Bandaríkjunum. Hann var með riffla og mikið magn skotfæra á sér og í skotheldu vesti.
Lögregla var fljót á staðinn eftir að tilkynning um árásina barst en þeim fyrstu á vettvang tókst ekki að koma í veg fyrir að hann næði að loka sig af inni í kennslustofu með hópi barna og kennurum.
„Við vorum með lögreglumenn á staðnum sem brugðust þegar í stað við og reyndu án þess að hika að komast inn í skólann. En þeir stóðu illa að vígi því byssumaðurinn hafði lokað sig inni í skólastofu,“ sagði Christopher Olivarez hjá lögreglunni í Texas í viðtali við bandaríska fréttamenn í nótt.
Ramos, sem lögregla segist hafa skotið til bana á vettvangi, er sagður hafa skotið ömmu sína á heimili þeirra áður en hann hélt akandi að Robb-grunnskólanum. Hann er sagður hafa klesst bílinn sem hann ók, áður en hann gekk inn í skólann klæddur hermannabúnaði og með riffil í höndunum.
Þegar í skólann var komið er Ramos sagður hafa lokað börnin 19 inni í skólastofu fyrir fjórða bekk, ásamt tveimur kennurum, og skotið þau til bana. Á meðan segist lögreglan hafa umkringt skólann og brotið rúður svo hægt væri að forða sem flestum börnum og starfsmönnum skólans út úr byggingunni.
Amma mannsins er ekki látin, en ástand hennar er sagt lífshættulegt. Rannsakendur málsins vonast til að hún geti varpað ljósi á hvers vegna maðurinn gerði það sem hann gerði. Auk þeirra 19 barna sem létust særðist nokkur fjöldi barna, en tala þeirra hefur ekki verið gerð opinber af yfirvöldum.
Á meðan á árásinni stóð söfnuðust óttaslegnir foreldrar saman fyrir utan skólann og biðu fregna af börnum sínum. Einn þeirra var Jessie Rodriguez.
„Ég er að leita að dóttur minni. Eftir skotárásina vita þau ekki hvar hún er.“

Öryggisgæsla í skólum í Bandaríkjunum var víða hert í dag.
Árásin er sú mannskæðasta í áratug í skóla í Bandaríkjunum eða frá árásinni í Sandy Hook grunnskólann. Á þessum áratug hafa um níu hundruð skotárásir verið gerðar í skólum þar í landi.
Bandarískir fjölmiðlar hafa í dag birt myndir af nokkrum af börnunum sem létust í árásinni. Þeirra á meðal af Uziyah Garcia sem var átta ára.

Kalla eftir harðari vopnalöggjöf
Margir eru sárir og reiðir og telja að fyrir átt hefði fyrir löngu að herða skotvopnalöggjöf í landinu. Þar á meðal Steve Kerr þjálfari körfuknattleiksliðsins Golden State Warriors.
„Það er nóg komið. Það eru 50 öldungadeildarþingmenn núna sem neita að greiða atkvæði um H.R. 8-frumvarpið, sem gerir ráð fyrir bakgrunnsathugun, sem fulltrúadeildin samþykkti fyrir tveim árum. Það hefur setið þarna í tvö ár. Það er ástæða fyrir því að þeir vilja ekki greiða atkvæði um það. Þeir vilja halda í völdin.“
Chris Murphy þingmaður Demókrataflokksins tók í sama streng.
„Þetta er eini staðurinn í heiminum þar sem svona gerist. Í engu öðru landi í heiminum óttast börn um líf sitt þegar þau ganga inn í skólann á morgnana. Þetta er val okkar. Við getum gert eitthvað í þessu.“
Þá ávarpaði Joe Biden þjóð sína eftir voðaverkin og hvatti til aðgerða og að vopnalöggjöfinni væri breytt.
„Við verðum að gera öllum kjörnum fulltrúum í þessu landi ljóst að það sé kominn tími til að grípa til aðgerða.“
Þrátt fyrir mikinn vilja forsetans og margra bandamanna hans í Demókrataflokknum er talið ólíklegt að byssulöggjöf Bandaríkjanna muni breytast að einhverju viti á næstu árum. Svo gott sem allir þingmenn Repúblikana, hvort sem er í fulltrúa- eða öldungadeild, eru á móti lagabreytingum sem takmarka rétt fólks til byssueignar svo nokkru varði.
Búist er við því að Biden Bandaríkjaforseti muni heimsækja Uvalde á næstu dögum, en árásin e sem var gerð þar í gær er sem fyrr segir mannskæðasta skólaskotárás Bandaríkjanna frá því í desember 2012, þegar 26 manns, þar af 20 börn, voru myrt í Sandy Hook skólanum í Connecticut.