Vieira missti stjórn á sér í leikslok á Goodison Park eftir að Crystal Palace missti niður 2-0 forystu og tapaði leiknum 3-2 fyrir Everton. Everton liðið bjargaði sér frá falli með þessum sigri og stuðningsmennirnir streymdu inn á völlinn við lokaflautið.
Night of football clashes sees mass pitch invasions and altercation between Vieira and fan https://t.co/PTIVN4xbUF
— Sky News (@SkyNews) May 20, 2022
Leikmenn og starfsmenn liðanna þurfa að ganga yfir allan völlinn til að komst til búningsklefanna og Vieira var því fljótt umkringdur kappsömum og hoppandi glöðum stuðningsmönnum Everton liðsins.
Það lítur út fyrir að einhver þeirri hafi náð að kveikja á stuttum þræði Frakkans því myndband sýnir Vieira snúa sér við og sparka í þennan stuðningsmann. Myndbandið er hér fyrir neðan.
Dion Dublin says there must be firm action taken against pitch invaders after Crystal Palace manager Patrick Vieira was confronted by Everton fans as he was walking off the pitch at full time. pic.twitter.com/FFDhfSqFgv
— Sky Sports Premier League (@SkySportsPL) May 19, 2022
Stuðningsmaðurinn var með síma á lofti og væntanlega að taka upp myndband af svekktur stjóra um leið og hann gerði örugglega allt sitt til að fá viðbrögð frá ranska stjóranum. Patrick reynir að grípa símann áður en hann sparkar í stuðningsmanninn þannig að hann fellur til jarðar.
„Ég hef ekkert að segja um það,“ sagði Patrick Vieira eftir leik þegar blaðamenn spurðu hann út í atvikið.
„Ég finn til með Patrick, Ég náði ekki til hans í leikslok því þá hefði ég getað sagt: Komdu með okkur þó að hann hefði kannski ekki viljað það,“ sagði Frank Lampard, knattspyrnustjóri Everton.