Bjartsýn
Við tóku lyfjameðferðir, geislar og að lokum eftir þriðju greininguna, sem var staðbundin, var framkvæmd aðgerð. Aðgerðin var legnám þar sem legið, legháls og eggjaleiðarar eru teknir. Í dag er eitt og hálft ár síðan krabbameinið gerði síðast vart við sig.

Það lengsti tíminn sem hefur liðið síðan fyrsta greiningin kom og er hún bjartsýn með framtíðina. Halla nýtir tímann sinn til þess að ferðast, að kenna og iðka jóga og vera með fólkinu sínu.
Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan en þar ræðir hún við Sigríði Þóru Ásgeirsdóttur um Kraft, heilsuna, hvernig hún greindist, að upplifa sig sem byrgði á fjölskylduna, tryggingar og „survivor's guilt“.
Skrítið að greinast ung
Halla Dagný segist hafa verið ung og að leika sér í lífinu þegar hún fékk greininguna. Hún stundaði nám í háskólanum, fór í ræktina og djammaði um helgar en skyndlega breyttist allt.
„Allt í einu er ég dottin út úr því, orðin sköllótt og þekki sjálfa mig ekki lengur,“
segir Halla. Hún segir það hafa tekið dágóðan tíma að venjast hárleysinu og fannst fyrst um sinn erfitt að fara út án þess. Hún segir það hafa verið ómetanlegt að geta leitað til Krafts þegar hún var skyndilega komin á þennan stað og hefur eignast góðan og sterkan vinahóp út frá félaginu.
„Vinkonur mínar sem voru bara áfram í háskólanum og voru að djamma og ég var bara heima eitthvað með krabbamein, við hvern á ég að tala?“
Syrgir barneignir
„Legið var tekið síðast en eftir geislana og allt það þá hef ég ekki getað gengið með börn,“ segir Halla. „Fyrst þegar ég greindist þá var enginn tími til að bíða og ræða þessi málefni, það var ekki einu sinni minnst á það en ég einhvernveginn gerði mér grein fyrir því sjálf að það væri ekkert gefið að ég gæti átt börn.“
Með tímanum fór staðreyndin að læðast að henni og í dag segist hún vera á þeim aldri að margir í kringum hana séu að eignast börn. „Núna undanfarið finn ég hvað ég hefi viljað það mikið,“ segir hún og segist leyfa sér að syrgja þá upplifun þegar tilfinningarnar koma.
„Það er eins og að syrgja eitthvað, stundum er það alveg ömurlegt og sárt.“
Erfitt að hugsa til þess að eignast maka
Hún segir möguleikana ekki vera marga þegar kemur að barneignum þar sem hún mætti líklega ekki ættleiða vegna heilsu þar sem leghálskrabbamein á fjórða stigi hafi tilhneigingu til þess að koma aftur, þó að það gangi mjög vel hjá henni.
Hún segir krabbameinið hafa haft áhrif á viljann til að eignast maka því hún segir það hræða sig að vera með einhverjum og greinast aftur.
„Svo náttúrulega get ég ekki átt börn og mér finnst það, líka svona flókið afþví ég myndi ekki vilja taka það frá einhverjum, að geta ekki eignast börn.“
Klisjurnar sannar
Halla Dagný segir gömlu klisjuna vera sanna að veikindin gefi manni nýja sýn á lífið og upplifði hún líkt og hula hafi verið tekin frá og hún hafi séð hvað virkilega skiptir máli.
„Ég náttúrulega lifi þannig að ég get vaknað á morgun með einhvern verk og það er komið aftur krabbameinið.“
Hún segir suma daga vera erfiðara en aðra andlega, að neikvæðu hugsanirnar komi reglulega upp, oftast nái hún að bæla þeim frá en suma daga þurfi að leyfa þeim að vera til þess að komast yfir þá.
Árleg vitundavakning Krafts er að hefjast og verður risa perlu viðburður haldinn í Hörpu um helgina, 22. Maí þar sem stefnt er á að slá íslandsmet í perli.
Markmið átaksins er að selja ný Lífið er núna armbönd, fá fólk til að koma saman og sýna samstöðu með því að perla armbönd og sýna almenningi inn í reynsluheim félagsmanna Krafts og þeim áskorunum sem verða á vegi þeirra.