Fjölnir og Selfoss enn með fullt hús stiga | Kórdrengir og Fylkir gerðu jafntefli Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. maí 2022 21:30 Fjölnismenn hafa unnið tvo af tveimur. Vísir/Vilhelm Fjölnir og Selfoss hafa unnið báða leiki sína í upphafi móts í Lengjudeild Karla í fótbolta. Fjölnismenn unnu 4-1 sigur gegn Þór á meðan Selfyssingar unnu 2-1 sigur gegn Gróttu. Á sama tíma gerðu Kórdrengir og Fylkir 1-1 jafntefli.
Það var líf og fjör í leik Fjölnis og Þórs, en Andri Freyr Jónasson kom heimamönnum í Fjölni í forystu eftir 25 mínútna leik. Tveimur mínútum síðar fékk Úlfur Arnar Jökulsson, þjálfari liðsins að fjúka upp í stúku þegar hann fékk tvö gul spjöld á stuttum tíma fyrir kjaftbrúk. Það sló Fjölnismenn þó ekki út af laginu því Andri Freyr Jónasson tvöfaldaði forystu þeirra stuttu fyrir hálfleik og staðan var því 2-0 þegar gengið var til búningsherbergja. Hákon Ingi Jónsson kom Fjölni í 3-0 með marki af vítapunktinum á 53. mínútu áður en Harley Willard minnkaði muninn fyrir gestina stuttu fyrir leikslok. Það var svo Hákon Ingi Jónsson sem rak smiðshöggið á sigur Fjölnismanna þegar hann skoraði fjórða mark liðsins á lokamínútum leiksins og gulltryggði 4-1 sigur liðsins. Á sama tíma unnu Selfyssingar góðan 2-1 sigur gegn Gróttu á Jáverk-vellinum á Selfossi. Gary Martin og Gonzalo Zamorano skoruðu mörk Selfyssinga áður en Ólafur Karel Eiríksson minnkaði muninn stuttu fyrir hálfleik. Að lokum gerðu Kórdrengir og Fylkir 1-1 jafntefli þar sem Daníel Gylfason kom Kórdrengjum yfir seint í fyrri hálfleik áður en Þórður Gunnar Hafþórsson jafnaði metin tuttugu mínútum fyrir leikslok. Bæði Fjölnir og Selfoss hafa nú unnið báða leiki sína í upphafi móts og sitja í fyrsta og öðru sæti deildarinnar með sex stig hvor. Fylkir hefur fengið fjögur stig úr fyrstu tveimur leikjum sínu, en Kórdrengir voru að ná í sitt fyrsta stig.
Lengjudeild karla UMF Selfoss Kórdrengir Fylkir Fjölnir Þór Akureyri Grótta Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira