Systur hljómuðu mjög vel á öllum sjónvarpsskjám hér í blaðamannahöllinni. Hljóðið var líka ótrúlega flott inni í keppnishöllinni sjálfri og áhrorfendur urðu ekki varir við neitt athugavert við hljóðið. Hljómsveitin fékk sérstaka auka hljóðæfingu fyrir rennslið vegna vandamálanna sem komu upp á dómararennslinu í gærkvöldi.
„Hljóðið var fullkomið og stemmningin í hópnum er virkilega góð fyrir kvöldið,“ sagði Rúnar Freyr Gíslason fjölmiðlafulltrúi hópsins við okkur rétt í þessu.
Við ræddum við Systur á hótelinu þeirra fyrr í dag og töluðu þau meðal annars um klúðrið í hljóðinu á dómararennslinu í gær.
„Við heyrðum í röddunum okkar en við heyrðum ekki í tónlistinni sjálfri, almennilega. Hún var mjög lág. Þá panikkar maður bara, ó nei,“ sagði Sigga um það sem fór í gegnum huga hennar.
„Það er bara ákveðin martröð tónlistarmanna,“ sagði Elín.
Þær segja vera með frábæran hóp í kringum sig sem hjálpi þeim og hafi þjálfað fyrir augnablik sem þetta.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum.
Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi.