Arteta: Forster var ótrúlegur Arnar Geir Halldórsson skrifar 16. apríl 2022 21:01 Mikel Arteta. vísir/Getty Mikel Arteta, stjóri Arsenal, trúði vart eigin augum þegar hann sá lið sitt tapa fyrir Southampton í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Arsenal var mun meira með boltann og átti fjölda marktækifæra í leiknum en það var Southampton sem gerði eina mark leiksins. Jan Bednarek skoraði það sem reyndist sigurmark leiksins seint í fyrri hálfleik. „Það er erfitt að taka þessum úrslitum. Miðað við hvernig við stjórnuðum leiknum algjörlega er erfitt að skilja hvernig við töpuðum leiknum,“ sagði Arteta í leikslok áður en hann hrósaði markverði Southampton, hinum 34 ára gamla Fraser Forster, í hástert. „Við hittum markið ekki nógu oft og hefðum getað gert betur á síðasta þriðjungi. Við fáum á okkur slakt mark úr föstu leikatriði en við hefðum átt að skora þrjú eða fjögur mörk.“ „Forster var ótrúlegur. Vörslurnar sem hann tók í dag unnu leikinn fyrir þá. Þessi leikur var einstefna,“ sagði Arteta. Arsenal hefur verið í frjálsu falli að undanförnu en þetta var þriðja tap liðsins í röð. Í síðustu tveimur leikjum á undan tapaði liðið gegn Crystal Palace og Brighton. „Það er mikið áhyggjuefni. Við erum að tapa leikjum á mismunandi hátt. Við spiluðum vel í dag en náðum ekki í úrslit. Við þurfum að gera bæði,“ sagði Arteta.
Enski boltinn Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Fótbolti Fleiri fréttir Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Sjá meira