Dyche hefur verið við stjórnvölin hjá Burnley í tæp tíu ár og var sá stjóri sem hafði verið lengst í starfi af öllum stjórum deildarinnar þar til hann var látinn taka pokann sinn í morgun.
Leikið verður í ensku úrvalsdeildinni um helgina og knattspyrnustjórar flestra liðanna voru spurðir út í fréttirnar frá Burnley á vikulegum blaðamannafundum sínum í dag og voru flestir þeirra á einu máli. Brottreksturinn kom mönnum í opna skjöldu.
„Af öllum stjórum deildarinnar hefði ég haldið að hann væri líklegastur til að halda starfi sínu. Ég veit auðvitað ekki hvað hefur gerst en það hlýtur að hafa verið eitthvað því þú lætur ekki mann eins og Sean Dyche fara eftir alla stórkostlegu hlutina sem hann hefur gert fyrir félagið undanfarin tíu ár. Hann hefur búið til þetta félag.“ sagði elsti stjóri deildarinnar, Roy Hodgson.
„Þetta var óvænt. Ég finn til með kollega mínum sem ég ber mikla virðingu fyrir. Ég held að hann verði ekki lengi án starfs því það sem hann hefur gert hjá Burnley er stórkostlegt. Sean er stór maður og hann veit hvernig þetta virkar. Stundum er þetta sanngjarnt og stundum ósanngjarnt,“ sagði Graham Potter, þjálfari Brighton.
Burnley have sacked Sean Dyche with 8 games left of the season. What a brilliant job he did for so many years. Feels like a really shitty thing to do.
— Gary Lineker (@GaryLineker) April 15, 2022
Á fyrstu þremur árum sínum hjá Burnley kom Dyche liðinu í tvígang upp úr B-deildinni og hefur svo haldið liðinu meðal þeirra bestu frá árinu 2016.
„Sean Dyche á allt lof skilið fyrir sitt starf og þeir ættu að byggja styttu af honum fyrir utan Turf Moor. Hann hefur náð ótrúlegum árangri. Á hverju tímabili fer hann inn í ensku úrvalsdeildina með eitt minnsta fjármagnið í deildinni en hefur alltaf náð mögnuðum árangri. Ég hefði haldið að það hefði verið vænlegra til árangurs að halda honum en auðvitað veit ég ekki alla söguna,“ sagði Thomas Frank, þjálfari nýliða Brentford og Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var á sömu nótum.
„Ég get bara hrósað honum. Það sem hann hefur gert fyrir þetta félag undanfarin tíu ár er stórkostlegt. Hann hefur skapað þetta félag og tekist að halda því í deildinni með miklu minna fjármagn en flest önnur lið deildarinnar,“ sagði Arteta.