Viðskiptaráðherra segist hafa gagnrýnt áform í nefnd með forsætis- og fjármálaráðherrum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 11. apríl 2022 13:14 Lilja Alfreðsdóttir, viðskiptaráðherra, Ágúst Bjarni Garðarson annar varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar Alþingis og Þórey S, Þórðardóttir framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða. Vísir Viðskiptaráðherra segist ekki vera undrandi á þeirri gagnrýni sem salan á Íslandsbanka hefur hlotið síðustu daga. Ábyrgðin hjóti að liggja hjá stjórnmálamönnum sem tóku ákvörðun í málinu. Varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar segir að framkvæmd útboðsins hafi verið allt önnur en Bankasýslan kynnti fyrir nefndinni. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða segir mikilvægt að kanna hvort salan hafi farið fram á eðlilegan máta.
Fréttaastofa óskaði eftir viðtali við Lilju Alfreðsdóttur viðskiptaráðherra og varaformann Framsóknarflokksins í morgun vegna hins svokallaða Íslandsbankamáls en hún vísaði til greinar í Morgunblaðinu sem birtist í dag. Þar kveðst hún hafa verið mótfallin þeirri ákvörðun að selja hlut ríkisins í Íslandsbanka til valins hóps fjárfesta. Hún segist hafa komið þessum sjónarmiðum sínum skýrt á framfæri í aðdraganda útboðsins. Lilja segir einnig í samtali við blaðið að ábyrgðinni sé ekki hægt að skella alfarið á stjórnendur Bankasýslunnar; ábyrgðin hljóti að liggja hjá þeim stjórnmálamönnum sem tóku ákvörðun í málinu. Segist hafa gagnrýnt áform um sölu í nefnd með forsætis-og fjármálaráðherrum Fréttstofa óskaði eftir upplýsingum um hvar Lilja Alfreðsdóttir hafi komið þessum sjónarmiðum á framfæri og fékk þau svör að hún hafi komið þeim á framfæri í ráðherranefnd um efnahagsmál þar sem hún situr ásamt forsætis-og fjármálaráðherra. Ágúst Bjarni Garðarson annar varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar Alþingis og þingmaður Framsóknarflokksins segir að forsvarsmenn Bankasýslunnar hafi kynnt allt önnur sjónarmið um sölu bankans en svo hafi komið á daginn. „Kynningin fyrir nefndinni var með þeim hætti að þarna stæði til að finna tiltölulega fáa og öfluga fjárfesta sem gætu staðið með bankanum en svo hefur bara annað komið á daginn. Ég held að Bankasýslan þurfi að íhuga stöðu sína eftir að gögn koma upp á yfirborðið. Fleiri stjórnarþingmenn telja að stjórn og framkvæmdastjóri Bankasýslunnar eigi að víkja vegna gagnrýni sem fram hefur komið á síðustu sölu á hlut Íslandsbanka. Þannig hefur þingmaðu Vinstri grænna Bjarni Jónsson viðrað sömu skoðun. Í lýsingu bankasýslunnar á tilboðsfyrirkomulaginu sem var valin við söluna til fjármálaráðherra kemur fram að þátttaka lífeyrissjóða og verðbréfasjóða í slíku útboði myndi alltaf tryggja aðkomu almennings meðóbeinum hætti. Lífeyrissjóðir sem tóku þátt í útboðinu fengu þó aðeins úthlutað um 40% af því sem þeir buðu. Þórey S. Þórðardóttir framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða segir mikilvægt að salan sé hafin yfir alla gagnrýni. „Eins og hefur náttúrulega komið fram þá skiptir máli að byggja upp traust og því er mikilvægt að fara ofan í hvort þarna hafi ekki verið staðið eðlilega að verki, eins og ákveðið hefur verið að Ríkisendurskoðun geri nú,“ segir Þórey. Bankasýslan svarar gagnrýni Bankasýslan sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem stofnunin gerir athugasemdir við eitt og annað sem hefur komið fram í fjölmiðlum undanfarna daga. Þar kemur fram að varðandi gagnrýni um hverjir hafi mátt kaupa í útboðinu þá leggi Bankasýsla ríkisins ekki mat á hvort fjárfestar uppfylli skilyrði þess að teljast fagfjárfestar. Slíkt mat liggi lögum samkvæmt hjá fjármálafyrirtækjum. Þá hafi komið fram að einungis hafi átt að selja til stærri aðila í útboðinu. Bankasýslan svarar því í yfirlýsingunni að slík lýsing á sölu með tilboðsfyrirkomulagi hafi hvergi komið fram í tillögu Bankasýslu ríkisins, greinargerð ráðherra, kynningum stofnunarinnar fyrir þingnefndum eða áliti þingnefndanna sjálfra. Þá hefði slíkt útboð að mati Bankasýslunnar síður samrýmst meginreglum laga um dreift og fjölbreytt eignarhald, jafnræði bjóðenda og að leita skyldi markaðsverð. Hægt er að nálgast athugasemdir stofnunarinnar hér.
Fjármál heimilisins Íslenskir bankar Alþingi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Tengdar fréttir Viðskiptaráðherra segist hafa gagnrýnt áform í nefnd með forsætis-og fjármálaráðherrum Viðskiptaráðherra segist ekki vera undrandi á þeirri gagnrýni sem salan á Íslandsbanka hefur hlotið síðustu daga. Ábyrgðin hjóti að liggja hjá stjórnmálamönnum sem tóku ákvörðun í málinu. Varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar segir að framkvæmd útboðsins hafi verið allt önnur en Bankasýslan kynnti fyrir nefndinni. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða segir mikilvægt að kanna hvort salan hafi farið fram á eðlilegan máta. 11. apríl 2022 13:14 Þungt hljóð í flokksmönnum VG vegna Íslandsbanka en gerir ekki athugasemdir við Þingmaður stjórnarmeirihlutans vill stjórn og forstjóra Bankasýslu ríkisins frá vegna Íslandsbankamálsins. Hann segir hljóðið þungt í flokksmönnum Vinstri grænna vegna málsins en gerir engar athugasemdir við aðkomu fjármálaráðherra. 10. apríl 2022 19:30 Salan á Íslandsbanka beri augljós einkenni spillingar „Sala fjármálaráðherra á hlut ríkisins í Íslandsbanka er skólabókardæmi um spillingu, aðstöðubrask, vanhæfni og óheilbrigða menningu ábyrgðarleysis undir forystu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Íslandsdeildar Transparency International. 10. apríl 2022 18:00 Þingið blekkt vegna sölu Íslandsbanka Nokkur atriði vegna ummæla Bryndísar Haraldsdóttur í Silfrinu vegna aðkomu Fjárlaganefndar og þingsins að sölu Íslandsbanka. 10. apríl 2022 15:00 Óæskilegt ef minni fjárfestar seldu beint eftir útboð Lífeyrissjóðir fengu úthlutað um 40 prósent af því sem þeir voru tilbúnir að kaupa í Íslandsbanka í síðasta útboði á hlut ríkisins. Framkvæmdastjóri Brúar lífeyrissjóðs segist hafa viljað fá stærri úthlutun, fjárfesting eins og þessi sé alltaf til langs tíma. Óheppilegt sé ef minni fjárfestar hafi selt skömmu eftir útboð. 10. apríl 2022 12:15 Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Fleiri fréttir Flugleiðir á barmi gjaldþrots og gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Sjá meira
Viðskiptaráðherra segist hafa gagnrýnt áform í nefnd með forsætis-og fjármálaráðherrum Viðskiptaráðherra segist ekki vera undrandi á þeirri gagnrýni sem salan á Íslandsbanka hefur hlotið síðustu daga. Ábyrgðin hjóti að liggja hjá stjórnmálamönnum sem tóku ákvörðun í málinu. Varaformaður efnahags-og viðskiptanefndar segir að framkvæmd útboðsins hafi verið allt önnur en Bankasýslan kynnti fyrir nefndinni. Framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða segir mikilvægt að kanna hvort salan hafi farið fram á eðlilegan máta. 11. apríl 2022 13:14
Þungt hljóð í flokksmönnum VG vegna Íslandsbanka en gerir ekki athugasemdir við Þingmaður stjórnarmeirihlutans vill stjórn og forstjóra Bankasýslu ríkisins frá vegna Íslandsbankamálsins. Hann segir hljóðið þungt í flokksmönnum Vinstri grænna vegna málsins en gerir engar athugasemdir við aðkomu fjármálaráðherra. 10. apríl 2022 19:30
Salan á Íslandsbanka beri augljós einkenni spillingar „Sala fjármálaráðherra á hlut ríkisins í Íslandsbanka er skólabókardæmi um spillingu, aðstöðubrask, vanhæfni og óheilbrigða menningu ábyrgðarleysis undir forystu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur,“ segir í yfirlýsingu frá stjórn Íslandsdeildar Transparency International. 10. apríl 2022 18:00
Þingið blekkt vegna sölu Íslandsbanka Nokkur atriði vegna ummæla Bryndísar Haraldsdóttur í Silfrinu vegna aðkomu Fjárlaganefndar og þingsins að sölu Íslandsbanka. 10. apríl 2022 15:00
Óæskilegt ef minni fjárfestar seldu beint eftir útboð Lífeyrissjóðir fengu úthlutað um 40 prósent af því sem þeir voru tilbúnir að kaupa í Íslandsbanka í síðasta útboði á hlut ríkisins. Framkvæmdastjóri Brúar lífeyrissjóðs segist hafa viljað fá stærri úthlutun, fjárfesting eins og þessi sé alltaf til langs tíma. Óheppilegt sé ef minni fjárfestar hafi selt skömmu eftir útboð. 10. apríl 2022 12:15