Boðar til kosninga í maí Atli Ísleifsson skrifar 11. apríl 2022 08:46 Scott Morrison er leiðtogi Frjálslynda flokksins í Ástralíu og hefur gegnt embætti forsætisráðherra frá árinu 2018. AP Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, hefur boðað til þingkosninga í landinu þann 21. maí næstkomandi. Ríkisstjórnarflokkarnir eru nú samtals með 76 þingmenn sem er lágmarksfjöldi þingmanna til að verja ríkisstjórn falli.
Skoðanakannanir benda til að stjórnarskipti séu framundan og þá að Verkamannaflokkurinn taki við stjórnartaumunum með formanninn Anthony Albanese þá sem næsti forsætisráðherra. Margir hafa þó rifjað upp að í síðustu kosningum hafi mið- og hægriflokkar unnið sigur, þrátt fyrir að skoðanakannanir hafi bent til annars. Anthony Albanese er formaður ástralska Verkamannaflokksins.AP Morrison sagði Ástrali nú standa frammi fyrir vali um sterka framtíð eða óvissu. „Þetta er val milli ríkisstjórnar sem þið þekkið eða stjórnarandstöðuflokks Verkamannaflokksins sem þið þekkið ekki,“ sagði Morrison á fréttamannafundi í gær. Albanese sagði hins vegar að Ástralir „geti og verði að gera betur“ og minnti Morrison á að aðstoðarforsætisráðherra landsins kallaði á dögunum Morrison „hræsnara og lygara“. Morrison er fyrsti forsætisráðherra Ástalíu til að klára kjörtímabil sitt í embætti frá því að John Howard lét af embætti árið 2007. Hann hafði þá unnið fernar þingkosningar í röð áður en hann laut í lægra haldi fyrir Kevin Rudd og Verkamannaflokknum árið 2007. Innanflokksátök hafa svo leitt til ítrekaðra valdaskipta í landinu síðustu ár.
Ástralía Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira