Blind box æði að grípa um sig í Kringlunni MINISO 11. apríl 2022 11:46 Kristín Bu rekstrarstjóri MINISO segir hálfa heimsbyggðina vera að tapa sér yfir Blind boxunum. Ratleikur hefst í búðinni í dag og verða tvö Blind box falin um búðina á dag fram að páskum. MINISO Blind box eru mætt í MINISO í Kringlunni. Kristín Bu rekstrarstjóri MINISO segir hálfa heimsbyggðina vera að tapa sér yfir boxunum og vinsældirnar snúist fyrst og fremst um spennuna við að opna boxið og sjá hvaða fígúru þú færð. „
Við köllum þetta Blind box því enginn veit hvað leynist í þeim. Þetta er glænýtt á Íslandi og við búumst fastlega við að þau slái í gegn. Þessi box njóta ótrúlega mikilla vinsælda um allan heim. Í Asíu er þetta algjör klikkun og kannski helst hægt að líkja vinsældunum við Pokemon æðið. Á Youtube er hægt að finna helling af myndböndum þar sem fólk er að opna fimmtíu box eða meira, bara að opna og sýna hvaða fígúrur þau fá, og fullt af fólki er að horfa. Það er akkúrat þetta augnablik sem er ástæðan af hverju fólk elskar þetta, þessi spenna eða tilfinning þegar innihaldið kemur í ljós,“ segir Kristín. Disney persónur og fleiri leynast í boxunum Innihald boxanna er þó fyrirsjáanlegt að því leiti að það inniheldur fígúrur sem flestir ættu að þekkja. Fyrstu seríurnar af Blind box sem koma til landsins innihalda meðal annars fígúrur úr Toy Story, Bangsímon, Tomma og Jenna og flesta vondu kallana úr Disney. „Í hverri seríu eru 6 til 12 fígúrur og þú veist ekki hvaða fígúru þú færð. Svo er alltaf ein í hverri seríu sem hvergi kemur fram hvernig lítur út og er mjög sjaldgæf. Það er því erfitt og eftirsótt að fá hana. Vondu kallarnir úr Disney eru meðal karaktera sem leynast í boxunum Boxin hafa verið vinsælust hjá krökkum en margar höfða líka til eldri kynslóða. Hægt er að leika sér með þær en oftast er fólk að stilla þeim upp á skemmtilegan hátt heima eða nota þær sem skraut á til dæmis töskur. Þetta eru mjög vandaðar fígúrur sem mikið er lagt í og fjölbreytnin er mjög mikil. Mikið söfnunaræði hefur gripið um sig annars staðar í heiminum og sjaldgæfustu fígúrurnar geta verið að seljast fyrir tugi þúsunda á netinu en boxin eru á afar sanngjörnu verði hjá okkur, á bilinu 1200 til 2200 krónur,“ segir Kristín. Ratleikur í búðinni „Núna í páskavikunni ætlum við að setja í gang ratleik þar sem við felum gjafapoka með blind box í versluninni okkar. Ratleikurinn verður í gangi alla vikuna og við munum fela tvo gjafapoka á hverjum degi í búðinni og fólk getur komið að leita. Við munum birta vísbendingar á samfélagsmiðlum okkar, facebook og Instagram svo við mælum með að fylgjast með okkur þar,” segir Kristín. Tommi og Jenni leynast í einhverjum boxanna
Páskar Mest lesið Óvíst hvort Ísland verði með í Eurovision Lífið Skringilega stór kaffibolli: „Ég verð aldrei aftur hreinn“ Lífið „Ég elskaði þig í fyrra lífi, ég elska þig í þessu lífi og mun finna þig í næsta“ Lífið Tjáði sig um ástarsambandið sem splundraði tveimur hjónaböndum Bíó og sjónvarp Brúðarbíllinn gömul dráttarvél frá langafa Lífið Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Tónlist Fáklædd og flott á dreglinum Tíska og hönnun Kynlífsstellingar sem kveikja í kofanum Lífið Stjörnulífið: „Skemmtilegasta kvöld lífs míns“ Lífið Rokkar pils sem bol og snýr flíkum öfugt Tíska og hönnun Fleiri fréttir Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira