Myndinni er leikstýrt af Alison Klayman og fjallar um keðjuna sem var fyrst stofnuð í kringum 1800. Í kringum aldamótin varð merkið þekkt fyrir kynferðislegar auglýsingar og áhersluna á al amerískt útlit og litla fjölbreytni. Fyrirtækið gaf það sjálft út að þau væru að leitast eftir „svölu krökkunum“ og aðrir ættu ekki heima í fötunum þeirra.
Forstjórinn lét hörð orð falla
Forstjóri fyrirtækisins árið 2006 Michael Jeffries sagði á sínum tíma í viðtali þar sem verið var að ræða markhóp fyrirtækisins og eftir hvaða kúnnum merkið væri að sækjast að þau vildi fá svölu, vinsælu, fallegu kúnnana og bætti við:
„Fullt af fólki á ekki heima (í fötunum okkar) og þau geta ekki átt heima í þeim. Erum við að útiloka suma? Algjörlega.“
Stærsta stærðin á gallabuxum hjá merkinu var stærð 10 á kvenkyns sniðinu og mittismálið 34 hjá karlkyns sniðinu. Einnig hélt fyrrum starfsmaður því fram að fyrirtækið brenndi gölluð föt í stað þess að gefa til góðgerðamála eins og tíðkast því að ekki allir ættu heima í merkinu.
Such a letdown to see that Abercrombie, a company geared toward teens, lets their CEO speak like this. http://t.co/T4DDLXMLPO
— Sophia Bush (@SophiaBush) May 13, 2013
Myndin fjallar um hneyksli fyrirtækisins
Merkið stækkaði og var allsráðandi á tímabili en hlaut mikla gagnrýni fyrir að mismuna umsækjendum í ráðningaferli og á endanum urðu markaðshættir þeirra að stóru hneyksli. Stjörnur eins og Sophia Bush og Kristey Allen töluðu opinberlega gegn merkinu eftir ummæli Michael Jeffries.
Í myndinni verða viðtöl við fyrrum starfsmenn, stjórnendur og fyrirsætur fyrir fyrirtækið. Myndin fer yfir mörg af þeim hneykslismálum sem fyrirtækið kom að. Þar má helst nefna hópmálsókn sem ásakaði fyrirtækið um að mismuna starfsfólki vegna litarháttar eða kyns.
Breyttu um stefnu
Í dag hefur fyrirtækið sett sér nýja stefnu og hefur gert í því að bjóða upp á fjölbreyttar stærðir og sníða fötin að fjölbreyttum þörfum einstaklinga. Í markaðssetningu fyrirtækisins er mikið lagt upp úr því að allir séu velkomnir og eru fyrirsæturnar í dag af öllum stærðum og gerðum.
Fyrirtækið opnar sig um Netflix myndina
Fran Horowitz-Bonadies tók við sem forstjóri A&F árið 2017 þegar Michael Jeffries fór úr stöðunni og hefur verið yfir þróun þess síðan. Merkið hefur gefið úr formlega yfirlýsingu vegna Netflix myndarinnar og segja það hafa þróast og geri í dag allt til þess að allir einstaklingar upplifi sig velkomna.