Framboðslistinn var samþykktur á fundi Samfylkingar Seltirninga og óháðra nú síðdegis. Samfylkingin bauð fram sér í síðustu kosningumm en fer nú fram ásamt óháðum Seltirningum sem vilja leggja sitt að mörkum við að bæta þjónustu við íbúa á Seltjarnarnesi að því er fram kemur í tilkynningu.
Haft er eftir Guðmundi Ara í tilkynningunni að ánægja íbúa með þjónustu bæjarins hafi mælst í sögulegu lágmarki í ánægjukönnun Gallups nýverið, skuldir hafi margfaldast og tekjur hvers árs dugi ekki til að halda úti núverandi þjónustustigi.
„Við bjóðum fram skýran valkost sem endurspeglar raunverulega breidd samfélagsins, valkost fyrir fólk sem vill forgangsraða í þágu þjónustu við alla íbúa sveitarfélagsins. Við erum tilbúin að hlusta á raddir fagfólks og ráðast í nauðsynlega uppbyggingu á innviðum í bæjarins,“ segir Guðmundur.
Sjá má framboðslistann í heild sinni hér að neðan:
- sæti Guðmundur Ari Sigurjónsson – Verkefnastjóri og bæjarfulltrúi
- sæti Sigurþóra Bergsdóttir – Framkvæmdarstjóri og bæjarfulltrúi
- sæti Bjarni Torfi Álfþórsson – Framkvæmdarstjóri og bæjarfulltrúi
- sæti Karen María Jónsdóttir – Skapandi stjórnandi
- sæti Guðmundur Gunnlaugsson – Rekstrarstjóri
- sæti Eva Rún Guðmundsdóttir – Táknmálstúlkur
- sæti Björg Þorsteinsdóttir – Grunnskólakennari
- sæti Stefán Árni Gylfason – Framhaldsskólanemi
- sæti Bryndís Kristjánsdóttir – Leiðsögumaður
- sæti Stefán Bergmann – Fyrrverandi dósent
- sæti Magnea Gylfadóttir – Fótaaðgerðafræðingur
- sæti Ólafur Finnbogason – Starfsþróunar- og öryggisstjóri
- sæti Hildur Ólafsdóttir – Verkfræðingur
- sæti Árni Emil Bjarnason – Prentsmiður