Barcelona er á leið í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar í fótbolta eftir 2-1 sigur gegn Galatasaray í kvöld. Fyrri leikur liðanna endaði með markalausu jafntefli, en það var Pierre-Emerick Aubameyang sem skoraði sigurmark Börsunga í kvöld.
Það voru þó heimamenn í Galatasaray sem tóku forystuna eftir tæplega hálftíma leik með marki frá Marcao. Pedri sá þó til þess að staðan var jöfn í hálfleik með marki á 37. mínútu eftir stoðsendingu frá Ferran Torres.
Pierre-Emerick Aubameyang kom Börsungum svo yfir snemma í síðari hálfleik þegar hann ýtti boltanum yfir línuna eftir tvöfalda vörslu frá Inaki Pena í marki Galatasaray.
Þetta reyndist seinasta mark leiksins og Börsungar verða því í pottinum þegar dregið verður í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar á morgun.
FULL TIME! #GalatasarayBarça pic.twitter.com/EpJt9svU68
— FC Barcelona (@FCBarcelona) March 17, 2022
Úrslit kvöldsins
Úrslit kvöldsins í Evrópudeildinni (Samanlögð úrslit í sviga)
Bayer Leverkusen 0-1 Atalanta (2-4)
Rauða Stjarnan 2-1 Rangers (2-4)
Galatasaray 1-2 Barcelona (1-2)
Monaco 1-1 SC Braga (1-3)