Conte: Að ná topp fjögur núna væri eins og að vinna deildina eða Meistaradeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2022 10:00 Antonio Conte þakkar stuðningmönnum fyrir eftir 5-0 stórsigur á Everton á Tottenham Hotspur Stadium í gær. AP/Ian Walton Antonio Conte, knattspyrnustjóri Tottenham, var að sjálfsögðu himinlifandi með frammistöðu sinna manna eftir 5-0 stórsigur á Everton í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Eftir sigurinn þá er Tottenham aðeins þremur stigum á eftir Arsenal í baráttunni um fjórða og síðasta sætið inn í Meistaradeildina en Arsenal á reyndar leik inni á Conte og lærisveina hans. „Við munum reyna allt okkar en svo sjáum við á endanum hverju það skilar okkur. Nú eru bara tólf leikir eftir og það enginn bikar í boði fyrir okkur,“ sagði Antonio Conte. „Ég er ekki hrifinn að tala um metnað eða að ná sæti í Meistaradeild því ég vil spila um það að vinna deildina og vinna titla. Í þessari stöðu sem við erum í núna þá gæti þetta verið okkar Meistaradeildartitill, okkar meistaratitill ef við náum þessum fjórða sæti,“ sagði Conte em ESPN segir frá. „Það er rétt að fagna aðeins en um leið þurfum við að halda einbeitingu og frá og með morgundeginum verðum við að fara að hugsa um laugardaginn. Það verður mikilvægur leikur en ég endurtek að leikmenn mínir mega fagna því að þeir eru að gera frábæra hluti,“ sagði Conte. „Leikmenn mega fagna en verða að halda einbeitingu og ekki missa augun af markmiðinu. Við eigum eftir tólf leiki og þeir eru allir eins og úrslitaleikir fyrir okkur,“ sagði Conte. „Ég hef núna sett þetta markmið fyrir liðið mitt og við verðum að stefna á það allan tímann Ég endurtek, að ná einu af efstu fjórum sætunum væri eins og við hefðum unnið ensku úrvalsdeildina eða Meistaradeildina á þessu tímabili,“ sagði Conte.
Enski boltinn Mest lesið Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira