Stjóri Boreham fékk falleg skilaboð frá Lampard fyrir leikinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. mars 2022 14:01 Frank Lampard og Luke Garrard á hliðarlínunni á Goodison Park. getty/Stu Forster Frank Lampard, knattspyrnustjóri Everton, sendi stjóra Boreham Town, Luke Garrard, falleg skilaboð nokkrum dögum áður en úrvalsdeildarliðið sló utandeildarliðið út í ensku bikarkeppninni.
Öskubuskuævintýri Boreham í ensku bikarkeppninni lauk í gær þegar liðið tapaði 2-0 fyrir Everton á Goodison Park í sextán liða úrslitum keppninnar. Boreham kom gríðarlega á óvart í bikarkeppninni og tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum hennar með sigri á Bournemouth, einu sterkasta liði B-deildarinnar. Eftir þann sigur sendi Lampard verðandi mótherja sínum í sextán liða úrslitunum falleg skilaboð. Dregið var í sextán liða úrslitin sama dag og Boreham vann Bournemouth. „Hæ Luke, Frank Lampard hér. Vildi bara óska þér til hamingju með úrslitin í gær. Bara þjálfara á milli sá ég hversu miklu máli þetta skipti þig og það er þess vegna sem við stöndum í þessu!“ skrifaði Lampard. „Ég geri þetta venjulega ekki fyrir leiki en ég vildi bara segja þetta og við, sem félag, bjóðum ykkur velkomna á Goodison. En vonandi samt ekki of velkomna þegar leikurinn hefst. Hlakka til að sjá þig, Frank.“ Á blaðamannafundi fyrir leikinn í gær hrósaði Garrard Lampard í hástert og kvaðst hlakka til að ræða við hann fyrir og eftir leik.
Enski boltinn Mest lesið Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira