Fráfarandi siðanefnd HÍ telur rektor hafa gert afdrifarík mistök Jakob Bjarnar skrifar 4. mars 2022 12:18 Ekki er hægt að skilja grein siðanefndafólksins fyrrverandi á annan hátt en þann að Jón Atli Benediktsson rektor hafi látið Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra afvegaleiða sig sem svo megi túlka sem ósigur fyrir fræðastarf í landinu. Henry Alexander Henrysson, Sólveig Anna Bóasdóttir og Skúli Skúlason sem skipuðu siðanefnd Háskóla Íslands þá sem sagði af sér nýverið gagnrýna Jón Atla Benediktsson rektor harðlega vegna afskipta hans og ákvarðana sem þau þrjú telja í hæsta máta vafasamar. „
Þetta er ósigur fyrir Háskóla Íslands og fræðastarf í landinu,“ segja þau Henry Alexander, Sólveig Anna og Skúli. Gagnrýni sína á rektor setja þau fram í grein sem þau birtu á Vísi nú rétt í þessu. Siðanefndin sagði af sér 10. febrúar en í afsagnarbréfi sem sent var á lokaðan hóp tóku Henry Alexander, Sólveig Anna og Skúli það fram að þau myndu ekki tjá sig frekar til að skaða ekki framgang málsins. Þau höfðu þá haft til umfjöllunar kæru Bergsveinn Birgisson rithöfundur sem hefur sakað Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra um að hafa, í nýlegri bók sinni Eyjan hans Ingólfs, ekki vísað tilhlýðilega til hugmynda sinna sem hann hafði sett fram í bók sinni Leitinni að svarta víkingnum. Henry Alexander Henrysson, Sólveig Anna Bóasdóttir og Skúli Skúlason sem skipuðu siðanefnd Háskóla Íslands höfðu ekki í hyggju að tjá sig um málið en telja sig nú nauðbeygð til þess.aðsend En aðstæður urðu með þeim hætti að þau telja sig nauðbeygð til að rjúfa þögn sína. „Það var fráfarandi nefnd mikil vonbrigði í hvaða farveg málið fór eftir afsögnina. Fréttavefur Morgunblaðsins birti til að mynda frétt skömmu síðar þar sem meðal annars komu fram upplýsingar sem Bergsveinn hafði ekki haft aðgang að. Upplýsingarnar gátu aðeins hafa komið annað hvort frá Ásgeiri eða skrifstofu rektors Háskóla Íslands. Þær komu ekki frá fráfarandi siðanefnd,“ segir í greininni. Rektor gefið villandi mynd af stöðu mála Rakið er að rektor hafi ítrekað tjáð sig í í fjölmiðlum með yfirlýsingum sem gáfu villandi mynd af því sem gerst hafði: „Ásgeir Jónsson birti svo í framhaldinu bæði greinargerð til siðanefndar (þegar hún hafði sagt af sér) og ýmsar hugleiðingar sínar um málið. Það gerði hann meðal annars á Facebook síðu sinni þar sem hann er skilmerkilega titlaður bæði seðlabankastjóri og dósent við Háskóla Íslands.“ Í grein sinni rekja þau þrjú eðli siðanefnda, þær séu ekki settar á fót til að vera vettvangur tilfallandi og handahófskenndra skoðana nefndarmanna. Þær vinna eingöngu eftir þeim siðareglum sem stofnanir hafa sett sér og taka ekki fyrir önnur erindi en þau sem vísa nákvæmlega og á rökstuddan hátt í reglurnar. „Það er því ógerlegt að taka undir með Ásgeiri Jónssyni sem líkir því við „opið Pandóru-box ef allir gætu kært orð og athafnir seðlabankastjóra og forseta til Siðanefndar HÍ.“ Líklega er þarna um að ræða vanskilning Ásgeirs á hlutverki og eðli siðareglna sem hann hefur þó gengist undir sem starfsmaður Háskóla Íslands. Siðareglur Háskóla Íslands fjalla til dæmis ekki um vaxtaákvarðanir og því er sjálfstæði Seðlabanka Íslands tryggt þótt bankastjóri sé einnig starfsmaður Háskóla Íslands,“ segir í greininni og ekki örgrannt um að þarna megi greina háðskan tón. Tilraun til að afvegaleiða umræðuna Ljóst má vera af lestri greinarinnar að siðanefndarfólkið telur sig hafa mátt sæta vanvirðu af hálfu Jóns Atla rektors. „Þegar rektor hafnar því að hafa haft afskipti af máli seðlabankastjóra virðist sem honum sé ekki ljóst hvað hann hefur aðhafst. Er rektor hafði tjáð Ásgeiri Jónssyni að samkvæmt eigin skoðun sinni væri Ásgeir ekki í ráðningarsambandi við Háskóla Íslands og lyti ekki lengur stjórn eða boðvaldi hans sendi Ásgeir siðanefndinni bréf um að málinu væri sjálfhætt. Hér hafði rektor tekið fram fyrir hendur siðanefndarinnar en hún vissi fyrst eftirá um þessi samskipti hans og Ásgeirs. Þetta er megininntak þess trúnaðarbrests sem setti nefndinni engan annan kost en segja af sér.“ Siðanefndarfólki segir það ekki standast skoðun að Ásgeir sé undanþeginn siðareglum Háskóla Íslands þó hann sé í launalausu leyfi og þau hafna því alfarið að ekki hafi legið til grundvallar lögfræðilegt álit á einmitt því. „Engin málsmetandi lögfræðimenntuð manneskja, svo siðanefndin viti til, hefur haldið öðru fram en að um ráðningarsamband sé að ræða þegar einstaklingur tekur launalaust leyfi. Ásgeir Jónsson segir að um „þekkingarleysi“ sé að ræða hjá nefndinni en það er öðru nær. Ágreiningurinn snýst ekki um það hvort ráðningarsamband sé til staðar eða ekki. Allt tal um slíkt er tilraun til að afvegaleiða umræðuna,“ segir í greininni. Telja upplegg Ásgeirs fráleitt Þá er vitnað til opins bréfs Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar um málið sem sagði fáránlegt af rektor að bjóða upp á þann möguleika að „að fræðimenn háskólans geti skipulagt vinnu sína þannig að þeir taki sér launalaust leyfi þegar þeir ætla sér að stunda einhvern fræðilegan ósóma og komið síðan til baka úr leyfinu með hreinan skjöld af því enginn hafði heimild til þess að kanna hvort ásakanir um ósómann væru sannar eða lognar.“ Þremenningarnir segja rök Ásgeirs Jónssonar snúast fyrst og fremst um að hann sé seðlabankastjóri og þess vegna gangi ekki að siðanefndin takið málið fyrir. „Honum virðist síður vera umhugað um óbreytta háskólaborgara. Við skulum láta hugmyndir Ásgeirs um eigið hlutverk (sem hann líkir við embætti forseta lýðveldisins) liggja milli hluta, en siðanefndin var ákveðin í að láta þær ekki hafa áhrif á sig.“ Greinina í heild sinni má finna hér neðar, í tengdum greinum.
Háskólar Bókaútgáfa Fjölmiðlar Höfundarréttur Bergsveinn Birgisson sakar Ásgeir Jónsson um ritstuld Tengdar fréttir Um afsögn Siðanefndar Háskóla Íslands Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum sagði Siðanefnd Háskóla Íslands af sér 10. febrúar 2022. Í afsagnarbréfi sem sent var á lokaðan hóp aðila var tekið fram að siðanefndin myndi ekki tjá sig frekar til að skaða ekki framgang máls 2021/4 hjá nefndinni, en það mál hefur verið rekið í fjölmiðlum. 4. mars 2022 11:58 Kári segir ákvörðun rektors í siðanefndarmáli herfileg mistök Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur það mikil mistök af hálfu Jóns Atla Benediktssonar háskólarektors að telja úr vegi að siðanefnd HÍ fjalli um kæru Bergsveins Birgissonar á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra. 22. febrúar 2022 09:44 Siðanefnd HÍ segir af sér í tengslum við meintan ritstuld seðlabankastjóra Siðanefnd Háskóla Íslands hefur sagt af sér. Þetta staðfestir Skúli Skúlason, fyrrverandi formaður nefndarinnar, í samtali við Vísi en hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. 14. febrúar 2022 18:25 Rektor kveðst ekki hafa haft afskipti af máli seðlabankastjóra Rektor Háskóla Íslands hafnar því að hann hafi haft bein afskipti á máli seðlabankastjóra, sem er sakaður um ritstuld, og segir málið ekki á sínu borði. Siðanefnd háskólans sagði af sér í síðustu viku en málið er enn á þeirra borði og þarf því að skipa nýja nefnd til að taka málið fyrir. 15. febrúar 2022 13:01 Mest lesið Mun sjá eftir árásinni alla ævi Innlent Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Innlent Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Innlent Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Innlent Ellefu slasaðir og þrír alvarlega í Kaupmannahöfn Erlent Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent Málið áfall fyrir embættið Innlent Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Innlent Frekari breytingar í Valhöll Innlent Fleiri fréttir Pilturinn muni líklega afplána þriðjung átta ára dóms fyrir manndráp Hornafjörður gæti bjargað flugi Icelandair á Ísafjörð Gefur lítið fyrir tal um fyrningu Brot á trausti gagnvart félögum Lúðvíks sem vilji hjálpa Gætti trúnaðar eftir að erindi tengdamömmunnar barst Mun sjá eftir árásinni alla ævi Segir lögreglumann sem njósnaði hafa gert mistök Frekari breytingar í Valhöll Ofsakláði grípur Spaugstofumenn Lítur málið mjög alvarlegum augum Átta ár fyrir að bana Bryndísi Klöru Hætta framleiðslu innanhúss og segja upp fólki Kristófer Breki nýr formaður Vöku Skýrsla starfshóps um lagaumgjörð hvalveiða tilbúin Gætu þurft að endurskoða aukastörf lögreglumanna Mjöll Snæsdóttir er látin Jafnréttisstofa kallar eftir svörum frá Ingu vegna skipunar í stjórn HMS Grunar að fleiri lögreglumenn hafi verið viðriðnir njósnirnar Segir Jon Øigarden Ingvar E þeirra Norðmanna Jafnréttisstofa krefur Ingu Sæland um útskýringu á vali á stjórnarmönnum „Það er ekkert til sem heitir að heita trúnaði um fundarbeiðni“ Fjölmiðlanefnd tekur fyrir umfjöllun Fréttarinnar Ráðherra vill að leigubílsstjórar tali íslensku Mál Ásthildar Lóu krufið fyrir opnum tjöldum Vill að þingflokkar vinni saman að því að stytta frí þingmanna Mikilvægt að vita hvar og hvernig réttar upplýsingar fást í krísuástandi Málið áfall fyrir embættið Skiptar skoðanir á stöðvarskyldu: „Held að enginn vilji hverfa aftur í það ástand“ „Miklu svakalegra en ég gerði mér grein fyrir“ Njósnaaðgerðir sagðar tengjast deilum tveggja af auðugustu mönnum landsins Sjá meira
Um afsögn Siðanefndar Háskóla Íslands Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum sagði Siðanefnd Háskóla Íslands af sér 10. febrúar 2022. Í afsagnarbréfi sem sent var á lokaðan hóp aðila var tekið fram að siðanefndin myndi ekki tjá sig frekar til að skaða ekki framgang máls 2021/4 hjá nefndinni, en það mál hefur verið rekið í fjölmiðlum. 4. mars 2022 11:58
Kári segir ákvörðun rektors í siðanefndarmáli herfileg mistök Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar telur það mikil mistök af hálfu Jóns Atla Benediktssonar háskólarektors að telja úr vegi að siðanefnd HÍ fjalli um kæru Bergsveins Birgissonar á hendur Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra. 22. febrúar 2022 09:44
Siðanefnd HÍ segir af sér í tengslum við meintan ritstuld seðlabankastjóra Siðanefnd Háskóla Íslands hefur sagt af sér. Þetta staðfestir Skúli Skúlason, fyrrverandi formaður nefndarinnar, í samtali við Vísi en hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. 14. febrúar 2022 18:25
Rektor kveðst ekki hafa haft afskipti af máli seðlabankastjóra Rektor Háskóla Íslands hafnar því að hann hafi haft bein afskipti á máli seðlabankastjóra, sem er sakaður um ritstuld, og segir málið ekki á sínu borði. Siðanefnd háskólans sagði af sér í síðustu viku en málið er enn á þeirra borði og þarf því að skipa nýja nefnd til að taka málið fyrir. 15. febrúar 2022 13:01
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar ítreka umfangsmiklar kröfur og Trump hótar að fara í fússi Erlent