Giroud skaut AC Milan á toppinn | Juventus styrkti stöðu sína Sindri Sverrisson skrifar 6. mars 2022 21:46 Olivier Giroud reyndist hetja AC Milan í kvöld. Francesco Pecoraro/Getty Images Olivier Giroud skoraði eina mark leiksins er AC Milan heimsótti Napoli í toppslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld, lokatölur 1-0. Þá vann Juventus einnig 1-0 sigur gegn Spezia fyrr í kvöld. Það var mikið undir er Napoli tók á móti AC Milan á Maradona-vellinum í Napoli í kvöld, enda voru liðin jöfn að stigum í öðru og þriðja sæti deildarinnar fyrir leikinn og ljóst að sigurliðið myndi tylla sér á toppinn. Þrátt fyrir nokkur vænleg færi var ekkert skorað í fyrri hálfleiknum og staðan því markalaus þegar gengið var til búningsherbergja. Fyrsta og eina mark leiksins leit dagsins ljós snemma í síðari hálfleik þegar Olivier Giroud teygði vinstri löppina í boltann og stýrði þannig skoti Davide Calabria í fjærhornið á 49. mínútu. Niðurstaðan varð því 1-0 sigur AC Milan og liðið tyllti sér á topp ítölsku deildarinnar. AC Milan er nú með 60 stig eftir 28 leiki, tveimur stigum meira en nágrannar þeirra í Inter og þremur stigum meira en Napoli sem situr í þriðja sæti. Inter á þó einn leik til góða á bæði AC Milan og Napoli og getur því endurheimt toppsætið með sigri í þeim leik. MILAN TWEET Þá vann Juventus mikilvægan 1-0 sigur gegn Spezia fyrr í kvöld þar sem Alvaro Morata skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Juventus situr í fjórða sæti deildarinnar með 53 stig, sex stigum meira en Atalanta og Roma í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti