186 lík fundist í Petrópolis Eiður Þór Árnason skrifar 23. febrúar 2022 09:23 Björgunaraðilar voru enn að störfum í borginni í gær. AP/Silvia Izquierdo Viku eftir að flóð og skriðuföll lögðu brasilísku borgina Petrópolis í rúst er talið að minnst 186 hafi farist í hamförunum. 69 einstaklinga er enn saknað að sögn lögreglu. Sú tala hefur farið lækkandi á seinustu dögum samhliða því að kennsl hafa verið borin á fleiri lík og aðrir fundið ástvini sína heila á húfi.
France24 greinir frá þessu og hefur eftir brasilískum yfirvöldum að lík 113 kvenna og 73 karla hafi fundist á svæðinu. Þar á meðal séu 33 börn. Yfir 800 manns sem þurftu að yfirgefa heimili staðsett á hættusvæðum dvelja enn í neyðarskýlum. Petrópolis er vinsæll ferðamannastaður staðsettur í fjallendi um 60 kílómetra norður af Rio de Janeiro. Um 300 þúsund íbúar fengu þann 15. febrúar meiri úrkomu á nokkrum klukkustundum en fellur að jafnaði allan febrúarmánuð. Fjöldi heimila urðu fyrir miklum skemmdum.Ap/Silvia Izquierdo Aurskriður lögðu tugi heimila í rúst og flóð rifu tré upp með rótum, veltu bílum og þöktu götur borgarinnar með þykkri leðju. Neyðarástandi var lýst yfir í borginni og voru á annað hundrað hermenn auk sérþjálfaðra leitarteyma sendir á svæðið. Staðsetning borgarinnar gerir það að verkum að skriðuföll hafa ítrekað leikið íbúa grátt. Þegar verst lét árið 2011 fórust yfir 900 manns í Petrópolis og nærliggjandi borgum vegna aurskriða.
Brasilía Náttúruhamfarir Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira