Tekur ekki fyrirliðabandið af Harry Maguire Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2022 14:01 Harry Maguire verður með fyrirliðabandið hjá Manchester United það er ef hann kemst í byrjunarliðið. AP/Jon Super Harry Maguire hefur ekki verið sannfærandi í vörn Manchester United að undanförnu en knattspyrnustjóri félagsins ætlar samt ekki að gera breytingu á stöðu hans innan liðsins.
Ralf Rangnick, knattspyrnustjóri Manchester United, fékk spurningu um fyrirliða sinn á blaðamannafundi fyrir deildarleik á móti Brighton & Hove Albion á Old Trafford í kvöld. Rangnick viðurkennir samt að Maguire hafi ekki verið að spila vel að undanförnu enda leit miðvörðurinn ekki alltof vel út í nokkur skipti í leikjum á móti Burnley og Southampton. View this post on Instagram A post shared by Sky Sports (@skysports) „Hann hefur ekki sýnt sitt besta í síðustu tveimur leikjum, bæði gegn Southampton og í markinu á móti Burnley en hann er fyrirliðinn okkar og ég sé enga ástæðu til að breyta því,“ sagði Ralf Rangnick. Það er samt ekki eins og þetta hafi verið fyrstu slöku leikirnir hjá Maguire á leiktíðinni. Stuðningsmenn United vilja margir sjá hann missa fyrirliðabandið og sumir vilja jafnvel sjá hann á bekknum. „Mér fannst hann standa sig einstaklega vel þegar hann kom til baka eftir meiðslin og átti meðal annars mjög góðan leik á móti West Ham,“ sagði Rangnick. Maguire fékk fyrirliðabandið hjá Manchester United í janúar 2020 eða aðeins fimm mánuðum eftir að félagið borgaði Leicester City áttatíu milljónir punda fyrir hann. Rangnick er á því að Maguire þurfi meiri tíma til að aðlagast nýjum leikstíl liðsins alveg eins og allir aðrir í liðinu. „Þessi leikstíll er nýr fyrir honum. Hann var vanur að spila í þriggja manna vörn hjá enska landsliðinu,“ sagði Rangnick meðal annars.
Enski boltinn Mest lesið Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira