„Úff, ég á ekki orð til að lýsa þessu,“ sagði Bjarki í samtali við Henry Birgi Gunnarsson, aðspurður hvernig það hafi verið að losna úr einangrun og geta snúið aftur á völlinn.
„Þetta voru hræðilegir dagar og kvíðavaldandi að bíða alltaf eftir einhverri niðurstöðu. Þetta var ólýsanlega gott og gaman í svona leik, sem við kláruðum snemma.“
Ekkert ryð var í Bjarka sem átti frábæran leik í dag. „Orkan var óhemju fín. Ég var afslappaður og notaði orkuna á réttum tímum. Sem betur fer var þetta ekki spennandi undir lokin. Það var gott.“
Hefðum unnið hvern sem er
Íslenska liðið spilaði frábærlega í fyrri hálfleik og var með níu marka forskot að honum loknum, 8-17.
„Við komum fáránlega einbeittir til leiks. Það var enginn að fara að taka þetta frá okkur. Þegar það er möguleiki á undanúrslitum, íslenskt lið inni á vellinum, við hefðum unnið hvern sem er. Við vorum aldrei að fara að klúðra þessu í dag,“ sagði Bjarki.
Skulda okkur eftir allt sem þeir hafa gert okkur
Eftir sigurinn er ljóst að Ísland spilar í versta falli um 5. sætið á EM. Ef Danmörk vinnur Frakkland í kvöld spila strákarnir okkar hins vegar til undanúrslita. Bjarki setur traust sitt á Danina í kvöld.
„Ég mun garga „Vi er røde vi er hvide“ á hótelganginum,“ sagði Bjarki.
„Ég ætla að senda á gæjana sem ég þekki í danska liðinu að þeir skuldi okkur þetta. Þeir segjast ekki skulda okkur þetta en þeir skulda okkur víst, eftir allt sem þeir hafa gert okkur í gegnum tíðina. Þeir eiga að gjöra svo vel að vinna og ég hef trú á því að þeir geri það, að þetta sé póker hjá þeim. Þeir vilja fá Svíana. Við förum í undanúrslit.“