Ísland hóf leikinn af miklum krafti og virtist ætla að ganga frá Króötum í fyrri hálfleik. Allt kom fyrir ekki og hin margumtalaða Króatíu-grýla lét á sær kræla í síðari hálfleik.
„Allt í einu vorum við komnir yfir á nýjan leik eftir að vörn og markvarsla kom upp. Það var svo grátlegt að skora ekki úr tveimur dauðafærum sem hefðu getað landað þessu,“ sagði Guðmundur um lokakafla leiksins.
Fyrri hluti fyrri hálfleiks var stórkostlega spilaður hjá íslenska liðinu.
„Ég er alveg sammála því, fyrri hálfleikur var rosalega vel spilaður hjá okkur. Hefðum getað verið með meira forskot, fannst að við hefðum átt að vera fjórum eða fimm mörkum yfir en vorum bara með tveggja marka forskot. Fórum illa með nokkrar sóknir.“
„Það má samt ekki gleyma hvað vantar mikið í liðið, það vantar níu leikmenn. Ég er að keyra þetta á fámennum hópi leikmanna og það væri erfitt að skipta mikið meira. Maður er farinn að biðja um mjög mikið en maður má ekki fara fram úr sér. Raunverulega var liðið að standa sig stórkostlega í dag, bara leiðinleg og ömurleg úrslit fyrir okkur.“
„Það var farið að draga af okkur, þetta var bara erfitt. Þeir hafa verið að fá menn inn í hópinn hjá sér á meðan við höfum verið að tapa mönnum og ég held að það hafi verið munurinn á liðunum í dag. Það vantaði meir kraft, það lagaðist margt þegar við fórum í sjö á sex og það hefði átt að duga,“ sagði Guðmundur að endingu.