Örmagna göngumanni bjargað við Keili Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. janúar 2022 16:50 Gengið með göngumanninn á börum. Keilir í baksýn. Landsbjörg Björgunarsveitarfólk kom göngumanni til bjargar norðvestur af Keili eftir hádegið í dag eftir neyðarkall hans vegna þreytu. Viðkomandi hringdi í Neyðarlínuna klukkan 13 og var hann kominn upp í björgunarsveitarbíl þremur og hálfri klukkustund síðar.
Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að göngumaðurinn hafi verið örmagna norðvestur af Keili þegar hann óskaði eftir aðstoð klukkan 13. Var hann í hrauninu við Höskuldarvelli og hafði verið á göngu við annan mann frá því fyrr í dag þegar hann varð örmagna af þreytu, en að öðru leyti óslasaður. Björgunarsveitir voru kallaðar út stuttu síðar til leitar að honum. „Svæðið í kringum gönguleiðina að Keili er mjög gróft apalhraun og erfitt yfirferðar,“ segir í tilkynningu Landsbjargar. Við komuna að björgunarsveitarbílnum eftir að hafa gengið með manninn á börum tveggja kílómetra langa leið.Landsbjörg Maðurinn hafi verið í lélegu símasambandi í grófu hrauninu og skilyrði til leitar því ekki með besta móti. Björgunarsveitarfólk hélt á svæðið úr tveimur áttum, hópar frá Grindavík, Vogum og Hafnarfirði. Rétt fyrir klukkan 15 voru mennirnir fundnir, þeim komið fyrir í neyðarskýli og þeim gefin orka og hlúð að þeim örmagna. Maðurinn var óslasaður, orkulaus en að öðru leyti í ágætis ásigkomulagi. Búið var um hann í sjúkrabörum og hjóli komið undir þær, þar sem flytja þurfti hann tveggja kílómetra leið að björgunarsveitarbíl. Það var svo um klukkan 16:30 sem björgunarsveitarfólk kom með manninn að björgunarsveitarbílnum sem flytur þá félagana til byggða.
Björgunarsveitir Fjallamennska Vogar Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Sjá meira