Veittu manni óleyfilegan aðgang að bankareikningum Eiður Þór Árnason skrifar 12. janúar 2022 14:59 Landsbankinn hefur þegar gert breytingar á fyrirkomulaginu. Vísir/Vilhelm Landsbankinn braut í bága við lög um persónuvernd þegar faðir fékk sjálfkrafa áframhaldandi lesaðgang að tveimur bankareikningum dóttur sinnar eftir að hún varð sjálfráða.
Föður kvartanda hafði verið veittur umræddur aðgangur þegar hún var ólögráða og farist hafði fyrir að fella hann niður við 18 ára aldur. Persónuvernd komst að þeirri niðurstöðu að vinnsla Landsbankans á persónuupplýsingum kvartanda hafi ekki verið í samræmi í lög þar sem hún hafði hvorki veitt föður sínum umboð né annað samþykki fyrir áframhaldandi aðgangi að reikningum sínum. Að sögn Persónuverndar var ekki talið tilefni að beina fyrirmælum til bankans um úrbætur þar sem þegar hafi verið gerðar breytingar á fyrirkomulagi og ráðstöfunum við veitingu aðgangsheimilda að reikningum. Með ólöglegan lesaðgang í níu ár Að sögn kvartanda veitti Landsbankinn föður hennar óheimilan aðgang að heimabanka hennar frá því að hún var 18 ára og þar til hún var 27 ára. Landsbankinn hafi ekki getað sýnt fram á að hún hafi veitt leyfi fyrir slíkum aðgangi og því væri um mannleg mistök að ræða. Í bréfi Landsbankans til Persónuverndar kemur fram að hinn 27. desember 2018 hafi dóttirin haft samband við bankann og óskað eftir skýringum á því hvers vegna faðir hennar hefði enn aðgang að reikningum hennar. Samdægurs hafi bankinn gripið til viðeigandi ráðstafana og fellt niður aðgangsheimild hans. Við skoðun bankans kom í ljós að föðurinn hafi stofnað tvo reikninga fyrir hönd kvartanda þegar hún var ólögráða og þar með haft lesaðgang að þeim, í samræmi við lög. Persónuvernd fékk kvörtunina í september árið 2020.Vísir/vilhelm Féllst ekki á skýringar bankans „Þrátt fyrir að bankinn harmi að faðir kvartanda hafi haft lesaðgang að reikningum hennar eftir að hún varð lögráða telur bankinn ekki unnt að líta fram hjá því að eðlilegt hefði verið að faðir kvartanda hefði upplýst hana um aðgang hans að bankareikningum hennar og óskað eftir samþykki hennar fyrir áframhaldandi heimild eftir að hún varð fullorðin. Faðir kvartanda hafi mátt vita að honum væri óheimilt að sækja upplýsingar um reikninga kvartanda eftir 18 ára afmælisdag hennar og á honum hafi hvílt skylda til að fella niður heimildir sínar við það tímamark. Þá hvíli ekki lagaskylda á bankanum til að fella niður lesaðgang og umboð á reikningum viðskiptavina að eigin frumkvæði en lög geri ráð fyrir að slík aðgerð fari fram að frumkvæði umboðsveitanda eða reikningseiganda sjálf,“ segir í ákvörðun Persónuverndar þar sem vísað er til svars frá Landsbankanum. Persónuvernd féllst hins vegar ekki á að þetta leysi bankann undan skyldum sínum tengdum þeirri vinnslu persónuupplýsinga sem talin er á ábyrgð bankans og fólst í að veita umræddan aðgang og gera persónuupplýsingar kvartanda tiltækar eftir að hún varð 18 ára. Nú gert með sjálfvirkum hætti Fram kemur í yfirlýsingu frá Landsbankanum til fréttastofu að umboð sem faðirinn hafði, og þar með lesaðgangur hans að reikningunum, hafi ekki fallið niður þegar dóttir hans varð 18 ára vegna mistaka. „Almennt verklag hjá bankanum á þeim tíma, fól í sér að starfsfólk sá um um að fella slík umboð niður þegar reikningseigandi náði lögræðisaldri. Frá árinu 2014 hafa slík umboð verið felld niður með sjálfvirkum hætti á 18 ára afmælisdegi reikningseigenda. Eftir að reikningseigandi tilkynnti um þetta tiltekna mál til bankans sendi bankinn að eigin frumkvæði tilkynningu um atvikið til Persónuverndar og gekk úr skugga um að ekki væri um fleiri sambærileg tilvik að ræða hjá bankanum. Okkur þykir þetta leitt en um var að ræða mannleg mistök.“
Persónuvernd Íslenskir bankar Mest lesið „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Viðskipti innlent Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Viðskipti innlent Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Verða ekki Framúrskarandi nema uppfylla lög um kynjahlutfall Framúrskarandi fyrirtæki Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Viðskipti innlent Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Viðskipti innlent Matarinnkaupum frestað fram yfir mánaðamót Neytendur Fleiri fréttir Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira