Þetta leiðir samantekt Innherja á ávöxtun innlendra hlutabréfasjóða í ljós en allir sjóðirnir þrettán skiluðu betri afkomu borið saman við þróun Úrvalsvísitölunnar en hún hækkaði um liðlega þriðjung á nýliðnu ári sem var afar gjöfult fyrir hlutabréfafjárfesta.
Góð ávöxtun ásamt umtalsverðu nettó innflæði í IS EQUUS þýddi að sjóðurinn, sem var stofnaður árið 2017, næstum fjórfaldaðist að stærð á árinu 2021 en eignir hans hækkuðu úr 3,5 milljörðum króna í 12,4 milljarða. Stærstu eignir sjóðsins, sem er stýrt af þeim Mogens G. Mogensen og Gísla Halldórssyni, í desember í fyrra voru Marel, Arion banka og Kvika banki en fjárfesting IS EQUUS í þeim félögum var um 42 prósent af heildareignum hans á þeim tíma.
Ólíkt sumum öðrum opnum hlutabréfasjóðum er IS EQUUS heimilt að fjárfesta í afleiðum að hámarki 50 prósent af heildareignum. Þá hefur sjóðurinn jafnframt heimild til að taka lán sem nemur fjórðung af heildareignum til skemmri tíma – stundum nefnd gírun – til að fjárfesta í hlutabréfum eða skortselja fjármálagjörninga.
Sjóðurinn Stefnir - Innlend hlutabréf, langsamlega stærsti hlutabréfasjóður landsins með um 36 milljarða eignir í stýringu, var með næst bestu ávöxtunina í fyrra, eða rúmlega 49 prósent. Þar á eftir kom Akta Stokkur, sem hefur rétt eins og IS EQUUS margfaldast að stærð á síðustu misserum, en hann skilaði sjóðsfélögum sínum nærri 48 prósenta ávöxtun.
Sú staðreynd að allir hlutabréfasjóðirnir eru að skila betri ávöxtun í samanburði við Úrvalsvísitöluna má meðal annars rekja til þess að vægi Marels, langsamlega verðmætasta fyrirtækisins í Kauphöllinni, er talsvert meira í vísitölunni en í eignasöfnum flestra sjóðanna. Hlutabréfaverð Marels hækkaði þannig minnsta allra skráðu félaganna í fyrra, eða um 10,9 prósent, en meirihluti fyrirtækja í Kauphöllinni sá hlutabréfaverð sitt hækka á bilinu 40 til 100 prósent.
Mishár umsýslukostnaður
Hástökkvari síðasta árs í Kauphöllinni var Arion banka, en hlutabréfaverð félagsins hækkaði um meira en 100 prósent. Þar á eftir kom Eimskip en gengi bréfa flutningafélagsins hækkaði um tæplega 96 prósent á árinu sem leið.
Þóknun við kaup á hlutdeildarskírteinum í hlutabréfasjóðum nemur oftast á bilinu 1,5 til 2 prósent. Sá sem kaupir í sjóði fyrir eina milljón króna, svo dæmi sé tekið, greiðir þá fimmtán til tuttugu þúsund krónur í þóknun. Til viðbótar innheimta sjóðirnir árlega umsýsluþóknun en í tilfelli IS EQUUS nemur hún 1,85 prósent en 1,71 prósent hjá Stefnir - Innlend hlutabréf. Í tilfelli Akta Stokks er umsýsluþóknunin nokkuð minni, eða 1,25 prósent, en sjóðurinn er einnig með árangurstengda þóknun sem er 20 prósent umfram þá ávöxtun sem honum tekst að skila í samanburði við Úrvalsvísitöluna.
Sjóðirnir bólgna út
Á fyrstu ellefu mánuðum síðasta árs nam uppsafnað innflæði í hlutabréfasjóði, að frádregnu útflæði, samtals um 29 milljörðum króna. Stöðugt innflæði ásamt miklum verðhækkunum í Kauphöllinni hefur valdið því að eignir hlutabréfasjóða hafa bólgnað út á undanförnum misserum. Í lok nóvember námu heildareignir þeirra nærri 154 milljörðum króna og höfðu þá aukist um liðlega 60 prósent á árinu.
Fjárfesting almennings í slíkum sjóðum hefur aukist talsvert að undanförnu og nema eignir heimila í hlutabréfasjóðum meira en 53 milljörðum króna borið saman við tæplega 30 milljarða í árslok 2020.
Lágt vaxtastig hefur ýtt verulega undir veltu og verðhækkanir á hlutabréfamarkaði þar sem fjárfestar hafa meðal annars verið færa sig úr áhættulitlum eignum, eins og ríkisskuldabréfum og innlánsreikningum, yfir í hlutabréf.
Á síðasta ári jukust hlutabréfaviðskipti í Kauphöllinni um 75 prósent. Heildarmarkaðsvirði skráðra félaga nam rúmlega 2.500 milljörðum króna í árslok 2021 og hækkaði það um 63 prósent á síðasta ári.