Körfubolti

Martin og félagar snéru taflinu við í síðari hálfleik

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Martin Hermannsson og félagar í Valencia unnu góðan sigur í kvöld.
Martin Hermannsson og félagar í Valencia unnu góðan sigur í kvöld. EPA-EFE/TOLGA BOZOGLU

Martin Hermannsson og félagar hans í Valencia unnu góðan tuttugu stiga sigur er liðið tók á móti Obradoiro í spænsku ACB deildinni í körfubolta í kvöld. Martin og félagar snéru leiknum sér í hag í þriðja leikhluta, en lokatölur urðu 91-71.

Gestirnir í Obradoiro tóku forystuna snemma leiks og náðu mest 11 stiga forskoti í fyrsta leikhluta. Martin og félagar réttu úr kútnum áður en leikhlutanum lauk og minnkuðu muninn í 18-24.

Annar leikhluti spilaðist nánast eins og sá fyrsti. Gestirnir náðu 11 stiga forskoti, en Martin og félagar minnkuðu aftur í sex fyrir hálfleik og staðan var 32-38 þegar gengið var til búningsherbergja.

Heimamenn í Valencia mættu grimmir til leiks eftir hálfleikinn og komust yfir snemma í þriðja leikhluta. Þegar komið var að lokaleikhlutanum höfðu Martin og félagar náð átta stiga forskoti og staðan orðin 59-51.

Valencia jók forskot sitt í lokaleikhlutanum og vann að lokum nokkuð öruggann tuttugu stiga sigur, 91-71. Liðið situr nú í fjórða til áttunda sæti ACB deildarinnar með 16 stig eftir 14 leiki, sex stigum meira en Obradoiro sem situr í 15. sæti.

Martin skoraði sex stig, tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×