Seinni bylgjan fór yfir nokkrar sögulínur úr Olís deild karla í síðasta þætti sínum fyrir jóla- og EM-frí. Þegar kom að Valsmönnum þá rifjuðu menn upp myndina frægu af Hvolpasveit Valsmanna en Valsliðið hélt áfram að vinna leiki þrátt fyrir að missa stórstjörnurnar Róbert Aron Hostert, Magnús Óli Magnússon og Agnar Smára Jónsson í meiðsli og veikindi.

Bjarni Fritzson var ánægður með innkomu Hvolpsveitarinnar í lið Íslandsmeistaranna.
„Þeir eru búnir að vera ferskur blær inn í deildina. Eru þið ekki sammála því,“ spurði Bjarni Fritzson hina sérfræðingana í sófanum.
„Þetta eru svona gæjar sem stíga alltaf upp á stóru mómentunum, Robbi, Aggi og Maggi, en eru kannski ekki alltaf að nenna þessu yfir tímabilið. Núna eru þessi ungu komnir inn og eru bara á milljón. Ef þeir ætla að spila og ná stöðunum sínum aftur þá er ekkert í boði að vera á hálfum hraða,“ sagði Theodór Ingi Pálmason.
„Ég er ekkert viss um það að ef ég væri Snorri að þessir ‚gömlu góðu' væru fyrstir á blað hjá mér,“ sagði Róbert Gunnarsson.
„Við höfum verið að tala um þessa breidd sem er svo mikilvæg í úrslitakeppninni. Nú er Snorri búinn að búa til breidd með þessum meiðslum af því að þessir ungu strákar hafa fengið stærra hlutverk. Núna er auðvelt fyrir Snorra að hvíla Robba, Magga og þessa stráka í tuttugu mínútur í leik,“ sagði Theodór.
„Þetta er samt ekkert auðvelt hjá honum því hann getur ekki farið að henda stjörnunum upp í stúku. Þetta er ekkert létt,“ sagði Róbert.
„Þetta er vandmeðfarið. Að kalla þetta að við séum að hvíla þá held ég að sé bara ekki rétt. Það eru bara einhverjir aðrir að skila og eru bara betri. Þess vegna ertu á bekknum. Núna getur hann sagt 3. janúar: Besti maðurinn spilar. Þetta er bara samkeppni. Þá kemur einhver geggjaður andi í liðið,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson.

„Æfingarnar hjá þeim verða örugglega trylltar þegar þessir gæjar eru komnir á gólfið aftur,“ sagði Theodór.
„Kjúllarnir eru svo góðir í handbolta og þeir eru líka að vinna leiki og þeir eru að taka leiki yfir. Þeir eru að skila í bikarúrslitum eða í stórum leikjum,“ sagði Bjarni.
„Þessir dýru menn hjá Val eru komnir upp við vegg. Þeir þurfa bara að spýta í lófana,“ sagði Róbert.
Það má sjá allt spjallið um Valsmenn hér fyrir ofan.