Innlent

Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Maðurinn hafnaði utan vegar í Hvalfjarðarsveit í september 2019 og mældist með 2,69 ‰ í blóðsýni. Myndin er alls ótengd málinu. 
Maðurinn hafnaði utan vegar í Hvalfjarðarsveit í september 2019 og mældist með 2,69 ‰ í blóðsýni. Myndin er alls ótengd málinu.  Vísir/Vilhelm

Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja ára og tveggja mánaða fangelsi fyrir ítrekaðan ölvunarakstur þegar hann hafði auk þess verið sviptur ökuréttindum. Landsréttur dæmdi í málinu í gær og þyngdi dóm héraðsdóms talsvert.

Maðurinn var sakfelldur fyrir brotið í Héraðsdómi Vesturlands í nóvember í fyrra en ríkissaksóknari áfrýjaði dómnum til Landsréttar. Samkvæmt dómi héraðsdóms braut maðurinn umferðarlög með því að hafa í september 2019 ekið sviptur ökuréttindum og óhæfur til að stjórna bílnum vegna áhrifa áfengis. Maðurinn mældist með 2,69 ‰ í blóði. Maðurinn hafnaði utan vegar við Lyngholt í Hvalfjarðarsveit áður en lögregla náði honum. 

Hálfu ári síðar, í maí 2020 stöðvaði lögregla manninn á Snæfellsvegi, og mældist hann þá með 1,82 ‰ í blóði. Maðurinn var þá sömuleiðis ekki með ökuréttindi. 

Maðurinn játaði brotin fyrir dómi og á hann að baki nokkuð samfelldan sakaferil sem nær aftur til ársins 2006. Hann hefur á bakinu þrettán dóma fyrir ýmis brot gegn almennum hegningarlögum, lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlögum. 

Þá hefur maðurinn verið margítrekað verið fundinn sekur um ölvunarakstur og akstur sviptur ökurétti. Maðurinn var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í héraði og var sviptur ökurétti ævilangt. Þá var honum gert að greiða tæpar 115 þúsund krónur í sakarkostnað. 

Landsréttur þyngdi fangelsisdóminn um ellefu mánuði. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×