Höfundur Hansdætra sendir frá sér nýja bók Forlagið 6. desember 2021 08:51 Benný Sif Ísleifsdóttir ólst upp á Eskifirði og sækir sögusviðið gjarnan til landsbyggðarinnar. Djúpið eftir Benný Sif Ísleifsdóttur er bók vikunnar á Vísi
Djúpið gerist sumarið 1975. Valborg, ungur líffræðinemi fær sumarstarf á Vestfjörðum við að efla atvinnutækifæri í brothættri byggð og eygir um leið tækifæri á nýju upphafi fyrir sig. Það gengur ekki eftir. Ástir og átök, litríkar persónur og samspil manns og náttúru einkenna söguna. Djúpið er þriðja skáldsaga Bennýjar Sifjar en Gríma kom út 2018 og Hansdætur 2020. Báðar hlutu þær mikið lof lesenda og gagnrýnenda, Gríma hlaut Íslensku hljóðbókaverðlaunin og Hansdætur var tilnefnd til Evrópsku bókmenntaverðlaunanna. Þá hafa tvær skáldsögur fyrir börn komið út eftir Benný Sif, Jólasveinarannsóknin og Álfarannsóknin. Djúpið hverfist um þrjá meginþræði, átröskun, nýtingu náttúruauðlinda og byggðavanda „Sagan hefst þegar Valborg röltir niður á BSÍ úr Þingholtunum og býst við að slást þar í hóp annarra nemenda úr raungreinadeildinni á leið í Djúpið, sem hún þekkir af því að vera plebbalegir og lummó. Hana rekur því í rogastans þegar hún hittir fyrir skvísuna Ellen Ellerts, þekkta fyrirsætu sem á kærasta í hljómsveit. Það kemur Valborgu úr jafnvægi og sumarið reynist henni erfitt. Hún býr á heimavistinni í Djúpinu og reynir að búa til nýja ímynd í hópi þessa unga fólks. Hún speglar sig stöðugt í Ellen og á erfitt með samanburðinn og þessa miklu samveru á heimavistinni,“ útskýrir Benný Sif. Hópurinn sem Valborg vinnur með á að koma með hugmyndir og innspýtingu inn í samfélagið í Djúpinu en verkefnið reynist meira í orði en á borði og ýmislegt sem á sér stað til hliðar sem meðal annars tengist nýtingu auðlinda á staðnum. Djúpið kallast hressilega á við nútímann þó sögusviðið sé áttundi áratugurinn. „Biðlistar í meðferð vegna átröskunar hafa aldrei verið lengri, nýting auðlinda, náttúruvernd og loftslagsmál eru í brennidepli og íbúar smærri byggða landsins búa víða við brothætt atvinnuöryggi. Að sumu leyti vel ég þennan sögutíma með tilliti til þessa,“ segir Benný Sif. „Ég er heilluð af fortíðinni og sögur sem við skrifum í dag og fjalla um horfna tíma eru samtal við nútímann. Speglunum hefur fjölgað, Valborg speglar sig í Ellen en í dag speglar fólk sig í samfélagsmiðlum sem gefa engin grið, á sögutíma Djúpsins eru sveitirnar að fara í eyði og fólk að færa sig í þéttbýlið en í dag eru það smærri bæjarfélög sem eiga undir högg að sækja. Sagan fjallar því með ákveðnum hætti um okkar tíma.“ Skáldsögur Bennýjar Sifjar gerast allar þrjár á landsbyggðinni enda þekkir hún það sögusvið vel, alin upp á Eskifirði. Sögurnar hennar fjalla einnig allar um konur. Benný Sif er þjóðfræðingur sem hún segir að gefi sér sérstaka sýn á heiminn. „Þjóðfræði snýst um allt í mannlegri tilveru og horfir ekki á sannleiksgildi í sögum sem við segjum, þjóðsögur, draugasögur, flökkusögur og svo framvegis, heldur frekar af hverju þær eru sagðar, hvers vegna verða þær til? Það er tengingin yfir í að skrifa skáldsögu. Fyrsta bókin mín, Gríma, fjallar um sjómannskonur og sagan er eiginlega minn félagslegi bakgrunnurþó hún gerist áður en ég fæðist. Mamma var sjómannskona og pabbi skipstjóri. Hansdætur gerist í sjávarþorpi fyrir vestan en pabbi var Vestfirðingur svo þangað liggur djúp taug. Jú, þetta eru allt kvennasögur með sterkum feminískum tón og Djúpið gerist á kvennaárinu 1975 en það eru sannarlega karlar í sögunum líka og ég hef fengið góð viðbrögð frá karlkyns lesendum einnig,“ segir Benný Sif.
Menning Bókmenntir Jól Mest lesið Svona er matseðillinn á Litla-Hrauni Lífið Emilíana Torrini fann ástina Lífið Segir strákum að hætta í bandarísku efni: „Eins og við séum í málhöltu úthverfi í Nebraska“ Menning Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Gagnrýni 50+: Að sleppa takinu af krökkunum þegar þau eru flutt að heiman Áskorun Rooney getur ekki farið til Bretlands af ótta við að verða handtekin Lífið Heitustu naglatrendin fyrir haustið Lífið Ævintýralegt frí Ómars og Evu Margrétar á Ítalíu Lífið Hlaupadrottning eignaðist dreng með hraði Lífið Danir með en keppnin sögð í fordæmalausri krísu Lífið Fleiri fréttir Uppselt, uppselt og aukatónleikum bætt við Sumar á Sýrlandi Skapaðu góðar minningar með Heimsferðum Þróaði vörur sem breyttu hans eigin lífi Lærðu að tala við gervigreindina og fá svör sem virka! Þykkari augnhár og augabrúnir – vísindin á bak við UKLASH Opnunarhátíð í Ríteil Kids „við erum að drukkna í fötum“ Hætti að þurfa að ryksuga upp hárin eftir hverja sturtu Ný svefnlína sem hjálpar þér að sofna, sofa og vakna hress! Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Með stimpil upp á ekta spænska matarmenningu Er hárið skemmt eða bara þurrt? Opna Preppbarinn í Keflavík og bjóða 50% afslátt Stjörnum prýdd dagskrá Bylgjunnar í Hljómskálagarðinum Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Víkurverk hefur allt fyrir ferðalagið og meira til Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Sjá meira
Segir strákum að hætta í bandarísku efni: „Eins og við séum í málhöltu úthverfi í Nebraska“ Menning
Segir strákum að hætta í bandarísku efni: „Eins og við séum í málhöltu úthverfi í Nebraska“ Menning