Tvö handtekin grunuð um að hafa stungið tvö börn og kastað úr mikilli hæð Atli Ísleifsson skrifar 15. nóvember 2021 07:36 Atvikið átti sér stað í Hässelby, úthverfi Stokkhólms. EPA Tveir fullorðnir einstaklingar hafa verið handteknir eftir að tvö börn fundust alvarlega slösuð fyrir utan fjölbýlishús í úthverfi sænsku höfuðborgarinnar Stokkhólms í gærkvöldi. Annað barnið var síðar úrskurðað látið á sjúkrahúsi og er hitt alvarlega sært.
Sænskir fjölmiðlar greina frá því að hin handteknu séu grunuð um að hafa stungið börnin með hníf og síðar kastað þeim út af svölum eða glugga hússins. Lögregla var kölluð út að húsinu, sem er að finna í hverfinu Hässelby, vestur af Stokkhólmi, skömmu fyrir klukkan 22 að staðartíma í gærkvöldi. Þar hafi verið tilkynnt um tvö illa særð börn, bæði yngri en tíu ára. Samkvæmt heimildum Aftonbladet fannst sömuleiðis fullorðinn einstaklingur særður í einni íbúð hússins. Lögregla var með mikinn viðbúnað á staðnum og var fjöldi sjúkrabíla sendur á vettvang. Helena Boström Thomas, talsmaður lögreglu, staðfestir að morðrannsókn sé hafin og að talið sé að börnunum hafi verið kastað úr húsinu af svölum eða glugga í um fimmtán metra hæð. Hún staðfestir að hin handteknu tengist börnunum, en annar hinna handteknu er sá sem fannst særður í íbúðinni.
Svíþjóð Mest lesið Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Innlent Hvers vegna að fella ísbirni? Innlent Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Innlent Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Erlent Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Erlent Framboð Baldurs þurfti að endurgreiða styrki sem fóru yfir hámark Innlent Eiginmaður íslenskrar konu lét sig hverfa rétt eftir brúðkaupið Innlent Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Erlent Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Innlent Fleiri fréttir Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Hafa séð Hezbollah fyrir símboðum í tvö ár Gera umfangsmiklar árásir í Líbanon Felldu tugi og brenndu forsetaflugvélina Reyna að stöðva olíuleka eftir að skip sökk við Grænland Neyðarástand vegna skógarelda í Portúgal Margrét Þórhildur á sjúkrahúsi Átta ára tók fjölskyldubílinn, ók í Target og fékk sér frappó Tuttugu konur saka Mohamed Al Fayed um kynferðisofbeldi 20 létust og 450 slösuðust þegar talstöðvarnar sprungu Vitorðsmaður viðurkennir að hafa gert það sama og Pelicot Þrír handteknir eftir skotárás við skóla í Osló Talstöðvar springa einnig í Beirút Harris eykur forskotið á landsvísu Þverár Amasonfljóts þorna upp sem aldrei fyrr Símboðarnir sagðir koma frá ungversku skúffufélagi Meta úthýsir rússneskum ríkisfjölmiðlum Sjá meira