Skyrim er tíu ára og fær enn eina útgáfuna Samúel Karl Ólason skrifar 11. nóvember 2021 14:44 Bethesda Hinn gífurlega vinsæli tölvuleikur The Elder Scrolls V: Skyrim kom út fyrir tíu árum í dag. Af því tilefni fær leikurinn enn eina útgáfuna og nú sérstaka afmælisútgáfu.
Bethesda, framleiðendur Skyrim, segja þessa útgáfu vera þá bestu hingað til. Sú yfirlýsing heldur þeim möguleika opnum að gefa leikinn út áfram. Síðan leikurinn kom fyrst út þann 11. nóvember 2011 hefur hann verið gefinn út margoft. Árið 2013 kom út Skyrim – Legendary Edition. Árið 2016 kom út Skyrim: Special Edition og árið 2017 var leikurinn gefinn út fyrir Nintendo Switch. Ofan á það hefur hann einnig verið gefinn út fyrir sýndarveruleika. Afmælisútgáfan er sum sé sjötta útgáfa Skyrim. Þessi útgáfa inniheldur upprunalega leikinn og þrjá aukapakka hans. Einnig má þar finna allt efni sem framleitt var í Creation Club, nýjar breytingar (Vopn, brynjur og annað) og þar að auki er nú hægt að veiða fisk í Skyrim. Bethesda gerði einnig minnst tvö ný verkefni sem snúa að fyrri leikjum seríunnar, Oblivion og Morrowind. Meðal nýrra hluta sem finna má í afmælisútgáfunni.Bethesda Creation Club er efnisveita sem Bethesda opnaði fyrir nokkrum árum með því markmiði að fá tekjur af efni sem svokallaðar „moddarar“ gera fyrir Skyrim. Á síðastliðnum áratug hafa fjölmargir „moddar“ verði gerðir fyrir Skyrim, sem bæta ýmsu við leikinn. Þessi nýjasta útgáfa gæti gert það að verkum að þessir moddar hætti að virka. Bethesda tilkynnti fyrir nokkrum árum að verið væri að vinna að sjötta leiknum í Elder Scrolls seríunni. Síðan þá hefur ekkert heyrst um leikinn en gera má ráð fyrir því að hann komi ekki út fyrr en í fyrsta lagi árið 2024. Bethesda Leikurinn Starfield, sem Bethesda hefur unnið að síðan Fallout 4 kom út og hefur verið lýst sem „Skyrim í geimnum“, kemur út 11. nóvember 2022.
Leikjavísir Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Fangelsi undir Vatnajökli Blood of Dawnwalker: Tíminn er þinn helsti óvinur Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Sjá meira