Aðventan er svo skemmtilegur tími og um að gera að njóta hans. Á sama tíma er þetta sá mánuður ársins þar sem við þurfum að passa vel upp á að keyra okkur ekki út:
Við erum að vinna, margir jafnvel meira en venjulega.
Og þá er eftir að reka heimili, ala upp börn, sjá um skutl, kaupa jólaföt, jólagjafir, baka, þrífa, hitta vini og vandamenn í aðventugleði, hugsa um peninga- og fjármálin og svo framvegis.
Pfúff!
Staðreyndin er samt sú að þegar að við verðum úttauguð af stressi, náum við ekki að afkasta nægilega vel eða að vera besta útgáfan okkar í samskiptum og þjónustu.
Í ofanálag getur streitan farið að trufla svefn og hvíld.
Fimm nauðsynlegar spurningar: Hvers vegna?
Til að draga úr desemberstreitunni og hjálpa okkur að halda fókus á þeim verkefnum og markmiðum sem raunverulega skipta máli, er ágætt að draga fram spurningarlistann góða sem á ensku útleggst sem listinn „5 why‘s.“
Dæmi:
Hvers vegna viltu þéna meiri pening? Vegna þess að ég á ekki nægan pening fyrir jólagjöfum.
Hvers vegna áttu ekki nægan pening fyrir jólagjöfum? Vegna þess að þær eru svo dýrar.
Hvers vegna eru jólagjafirnar sem þú ætlar að kaupa svona dýrar? Að því að mig langar til dæmis að gefa makanum mínum gjöf sem er frekar dýr og síðan langar börnunum í frekar dýrar gjafir og síðan eru það mamma og pabbi, tengdó og systkinabörnin og og og…..
Hvers vegna mun þér líða betur að gefa gjafir sem þú átt ekki pening fyrir? Þá verða allir svo ánægðir með gjafirnar sínar.
Hvers vegna verða allir bara ánægðir með gjafirnar sínar ef þær eru dýrari en þú hefur efni á? Uh...!
Við getum líka mátað þessar spurningar við til dæmis verkefni í vinnunni. Fyrsta spurning gæti þá verið:
Hvers vegna þarftu að klára þetta verkefni fyrir fimmtudag?
Eða mátað þessar spurningar við heilsuna okkar. Til dæmis:
Hvers vegna er syfjar mig svona yfir daginn?
Því oftar en ekki er streita sjálfsköpuð.
Við setjum okkur tímapressu sem enginn annar hefur beðið okkur um að setja svona stíft.
Eða setjum okkur markmið sem eru háleit og góð en í raun alls ekki nauðsynleg.
Svo ekki sé talað um svefninn.
Hvernig er staðan hjá þér?