Basti efast stórlega um að fyrsti sigurinn hjá hans liði komi í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2021 13:00 Sebastian Alexandersson í síðasta leik HK-liðins á móti Aftureldingu. Vísir/Vilhelm HK-ingar eru enn stigalausir í Olís deild karla í handbolta eftir fimm töp í röð í upphafi tímabilsins. Þjálfarinn var kannski aðeins of hreinskilinn eftir síðasta leik.
Sebastian Alexandersson er á sínu fyrsta tímabili með HK eftir að hafa þjálfað Framara í fyrra. HK-liðið hefur verið að standa í sínum mótherjum í flestum leikjum en ekkert stig er samt enn komið í hús í Kórnum. HK tapaði síðasta leik með tveimur mörkum á móti Aftureldingu en liðið hafði einnig tapað með tveimur mörkum á móti Fram og með þremur mörkum á móti KA í spennandi leikjum. Sebastian Alexandersson var ekkert bjartsýnn á það eftir tapið á móti Aftureldingu að HK-liðið myndi loks ná í sigur í leik númer sex. „Afturelding lenti í því og það lenda allir í því að eiga slæma kafla. Við eins og önnur góð lið hættum ekki. Við höldum bara áfram og við erum að nálgast og nálgast og nálgast. Hvenær við náðum sigrinum? Ég veit það ekki en hann mun koma. Ég efast stórlega um að hann komi á föstudaginn en við munum samt reyna,“ sagði Sebastian Alexandersson eftir leikinn. Það fylgir sögunni að næsti leikur HK-liðsins er í kvöld og á móti Haukum. Haukaliðið er í fimmta sæti deildarinnar með þrjá sigra og eitt jafntefli í fimm leikjum. Það má sjá Sebastian í viðtalinu hér fyrir neðan. Klippa: Seinni bylgjan: Basti ekki bjartsýnn Leikur Hauka og HK hefst klukkan 20.00 á Ásvöllum. Tveir leikir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport í kvöld. Leikur Fram og ÍBV verður sýndur á Stöð 2 Sport klukkan 18.00 og leikur FH og KA verður sýndur á Stöð 2 Sport 4 klukkan 19.30. Seinni bylgjan gerir síðan upp alla umferðina klukkan 21.10 annað kvöld.
Olís-deild karla HK Seinni bylgjan Mest lesið Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Andrea opnar sig eftir sjálfsniðurrrif: „Andskotinn hafi það“ Sport Löggan þorði ekki að þiggja miða Fótbolti HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Fótbolti Eriksen kominn heim og einbeitir sér að fótbolta með krökkunum Fótbolti Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira