Bauð sátt tveimur dögum áður en 167 milljóna dómsmál átti að hefjast Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. október 2021 11:22 Björn H. Halldórsson, fyrir miðju, tekur í höndina á Degi B. Eggertssyni borgarstjóra þegar skrifað var undir yfirlýsingu um aðgerðir í loftslagsmálum árið 2015. Sorpa Stjórn Sorpu bauð Birni Halldórssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtæksins, sátt í máli sem hann höfðaði gegn fyrirtækinu tveimur dögum áður en aðalmeðferð þess, þar sem hann krafðist 167 milljóna í bætur fyrir ólöglega uppsögn, átti að hefjast.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Birni í kjölfar frétta um að umrædd sátt hafi náðst á milli hans og Sorpu. Birni var sagt upp störfum sem framkvæmdastjóra Sorpu bs í febrúar á síðasta ári. Á sínum tíma var uppsögnin sögð grundvallast skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar, sem ráðist var í eftir 1,4 milljarða krónu framúrkeyrslu við áætluðan framkvæmdakostnað vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar í Álfsnesi og móttökustöðvar í Gufunesi. Í skýrslunni var gert úr mikið úr hlut framkvæmdastjórans; hann t.a.m. sagður hafa trassað að upplýsa stjórn Sorpu um stöðu framkvæmdanna með eðlilegum hætti. Skýrslan var kynnt í janúar á síðasta ári. og var Björn sendur í leyfi meðan á úrvinnslu hennar stóð. Frá framkvæmdum við jarðgerðarstöðina örlagaríku.Vísir/Halldór Björn mótmælti harðlega niðurstöðum skýrslunnar og höfðaði máli þar sem hann krafði félagið um 167 milljónir vegna uppsagnarinnar. Aðalmeðferð málsins átti að hefjast í október. Samkvæmt sáttinni mun Björn fá greidd sex mánuði í laun til viðbótar við sex mánaða laun sem hann hafði þegar fengið greidda samkvæmt samningi. Þá mun Sorpa einnig greiða lögfræðikostnað hans upp á 1,5 milljónir króna. Segist hafa verið tilbúinn til að semja frá upphafi „Ég hef undirritað sátt við Sorpu bs. vegna starfsloka minna hjá fyrirtækinu. Með henni er lokið óþarflega langri deilu, sem hefur óneitanlega tekið á mig og fjölskyldu mína,“ segir í yfirlýsingu Björns. Þar segir Björn að hann hafi frá upphafi málsins verið reiðubúinn til þess að semja um starfslok frá upphafi málsins, þrátt fyrir að hann telji sig ekki hafa á neinn hátt brotið af sér í starfi. „Tveimur dögum áður en aðalmeðferð málsins var fyrirhuguð fyrir héraðsdómi bauð fyrirtækið fram sátt í málinu. Í því felst að sjálfsögðu viðurkenning á því að stjórn Sorpu braut á mér og hafði rangt við og hef ég að vel íhuguðu máli ákveðið að ganga að sáttinni enda er mál að linni. Ég hef snúið mér að öðrum verkefnum og horfi fram á við,“ segir Björn. Sorpa greiðir Birni sex mánaða laun auk lögfræðikostnaðar.Vísir/Vilhelm Þá gagnrýnir, sem fyrr, skýrslu innri endurskoðunar, sem var sögð vera grundvöllur uppsagnar hans á sínum tíma. „Lítið sem ekkert tillit var tekið til andmæla minna og réttur minn til aðgangs að þeim gögnum sem skýrslan átti að byggja á var skertur. Við bættist að allar ákvarðanir stjórnar voru teknar undir vakandi augum fjölmiðla, þ.á m. ákvörðun stjórnar um að afþakka starfskrafta mína og senda mig í launalaust leyfi, veiting áminningar sem ég gat aldrei brugðist við og að lokum formleg uppsögn. Þessi starfslok urðu með þeim hætti að ég sá mig knúinn til að höfða dómsmál gegn fyrirtækinu í þeim tilgangi að fá viðurkennt að ég var beittur rangindum og hafður fyrir rangri sök,“ segir Björn. Óskar hann Sorpu og starfsfólki þess góðs gengis í framtíðinni. „Mér var þvert um geð að höfða mál gegn þessu góða fyrirtæki, þar sem ég starfaði í 20 ár. Við almennt starfsfólk Sorpu hef ég eingöngu átt í góðum samskiptum allan þann tíma og sneri þessi málshöfðun á engan hátt gegn því. Fyrirtækinu og starfsfólki þess óska ég alls hins besta í framtíðinni.“
Sorpa Dómsmál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Sorpa og Björn ná sáttum Sorpa mun greiða Birni Halldórssoni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, laun í sex mánuði til viðbótar auk lögfræðikostnaðar sem hluti af sátt eftir að Björn höfðaði mál gegn Sorpu vegna uppsagnar sinnar á síðasta ári. 21. október 2021 07:50 Ekki stefnan að selja moltu úr Gaju Stjórnarformaður Sorpu hafnar því að ný gas- og jarðgerðarstöð borgi sig ekki. Kostnaður við gerð hennar hafi farið fram úr áætlunum en hún borgi sig margfalt umhverfislega séð. 22. ágúst 2021 13:00 Moltugerð í Gaju stöðvuð tímabundið vegna myglu Fullvinnsla á lífrænum úrgangi í moltu í Gaju, gas- og jarðgerðarstöð SORPU, var stöðvuð tímabundið eftir að myglugró fundust í þaki og burðarvirki hennar í ágúst. SORPA ætlar að hækka gjaldskrár sínar til að standa undir kostnaði við að flytja úrgang úr landi til brennslu. 15. september 2021 11:46 Framkvæmdastjóri Sorpu segir skýrsluna „ranga, ótrausta og andstæða fyrri yfirlýsingum“ Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar á stjórnarháttum félagsins. 22. janúar 2020 20:24 Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent Ófremdarástand í bílastæðamálum aðhlátursefni Neytendur Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira
Sorpa og Björn ná sáttum Sorpa mun greiða Birni Halldórssoni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækisins, laun í sex mánuði til viðbótar auk lögfræðikostnaðar sem hluti af sátt eftir að Björn höfðaði mál gegn Sorpu vegna uppsagnar sinnar á síðasta ári. 21. október 2021 07:50
Ekki stefnan að selja moltu úr Gaju Stjórnarformaður Sorpu hafnar því að ný gas- og jarðgerðarstöð borgi sig ekki. Kostnaður við gerð hennar hafi farið fram úr áætlunum en hún borgi sig margfalt umhverfislega séð. 22. ágúst 2021 13:00
Moltugerð í Gaju stöðvuð tímabundið vegna myglu Fullvinnsla á lífrænum úrgangi í moltu í Gaju, gas- og jarðgerðarstöð SORPU, var stöðvuð tímabundið eftir að myglugró fundust í þaki og burðarvirki hennar í ágúst. SORPA ætlar að hækka gjaldskrár sínar til að standa undir kostnaði við að flytja úrgang úr landi til brennslu. 15. september 2021 11:46
Framkvæmdastjóri Sorpu segir skýrsluna „ranga, ótrausta og andstæða fyrri yfirlýsingum“ Björn H. Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar á stjórnarháttum félagsins. 22. janúar 2020 20:24