Hljómsveitin Flott reið á vaðið í síðustu viku en nú er komið að Teiti Magnússyni, sem hefur lengi verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins. Í þessari umferð stofutónleikanna munu auk þeirra Superserious, Raven og Superserious stíga á stokk.
Tónleikarnir voru teknir upp að viðstöddum nokkrum gestum og eru ýmist rafmagnaðir eða órafmagnaðir.
Teit Magnússon þarf vart að kynna fyrir íslenskri alþýðu. Eftir að hafa gefið út reggí tónlist með Ojba Rasta vakti Teitur athygli undir eigin nafni árið 2014 með sólóplötu sinni 27. Platan innihélt skynvillu-skotið dægurlagapopp og var fylgt eftir með plötunni Orna árið 2018 við góðan orðstír. Þannig var Teitur nýverið tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir lag sitt Skriftargangur.
Teitur gefur út nýja plötu þann 5. nóvember næstkomandi sem ber heitið 33.